Linda Ben

Mjólkur og eggjalausir mjúkir kanilsnúðar með glassúri (vegan)

Recipe by
2 klst og 30 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Veru Örnudóttir

Hér höfum frægu mjúku kanilsnúðana mína nema án mjólkurafurða og eggja. Þetta eru nákvæmlega sömu mjúku og djúsí snúðarnir nema í þetta skiptið eru þeir fyrir alla! Ofnæmispésa, vegan og alla aðra.

Það kemur í ljós að egg eru alls ekki nauðsynleg í þessa uppskrift og því var því einfaldlega sleppt hér, en í staðin fyrir mjólkina er notað hafrajógúrt með karamellu og perum frá Veru Örnudóttir, en það er mín uppáhalds vara til að baka mjólkurlausar uppskriftir úr. Jógúrtið skilar sér í einstaklega mjúkum og bragðgóðum snúðum.

Mjólkur og eggjalausir mjúkir kanilsnúðar með glassúri (vegan)

Mjólkur og eggjalausir mjúkir kanilsnúðar með glassúri (vegan)

Mjólkur og eggjalausir mjúkir kanilsnúðar með glassúri (vegan)

Mjólkur og eggjalausir mjúkir kanilsnúðar með glassúri (vegan)

Mjólkur og eggjalausir mjúkir kanilsnúðar með glassúri

  • 7 g þurrger
  • 100 ml volgt vatn
  • 250 ml Hafrajógúrt með karamellu og perum frá Veru Örnudóttir
  • 80 g brætt jurta/vegan smjör
  • 450 g hveiti
  • ½ dl sykur
  • 1 tsk salt

Fylling

  • 120 g mjúkt jurta/vegan smjör
  • 2 dl sykur
  • 2 msk kanill

Glassúr

  • 400 g flórsykur
  • ½ tsk vanilludropar
  • 4-5 msk heitt vatn

Aðferð

  1. Byrjið er á að setja hafrajógúrt í skál, hitið 100 ml af vatni að suðu og hellið út í jógúrtið, blandð saman. Bætið gerinu útí og hrærið, leyfið að standa í smá stund.
  2. Setjið hveitið í skál, bætið út í það sykrinum og saltinu.
  3. Bræðið jurta smjörið, leyfið því að kólna svolítið.
  4. Hellið jógúrt-gerblöndunni út í hveitið og hrærið, hellið brædda smjörinu einnig út í á meðan deigið hnoðast.
  5. Látið deigið hefast í 1 – 1 ½ klst eða þangað til deigið hefur tvöfaldast í stærð.
  6. Þegar deigið hefur hefast, dreifið þá svolítið af hveiti á borðið, takið deigið úr skálinni og fletjið það út í um það bil 20×40 cm flöt.
  7. Blandið saman mjúku vegan smjöri, sykri og kanil í skál, hrærið þar til blandað saman. Smyrjið fyllingunni yfir allt deigið.
  8. Rúllið svo upp deiginu frá 40 cm endanum í lengju og skerið hana svo í 12 – 15 bita.
  9. Smyrjið frekar stórt eldfast mót með smjöri og raðið snúðunum ofan í formið, það má vera frekar rúmt á milli snúðanna því þeir eiga eftir að stækka.
  10. Leggið hreint viskustykki yfir formið og látið snúðana hefast í um það bil 30 mín.
  11. Stillið ofninn á 175°C og undir og yfir hita.
  12. Setjið snúðana í ofninn og látið bakast í 35-45 mín (tími fer eftir hversu þykkir snúðarnir eru) eða þangað til þeir eru orðnir fallega gullnir á litinn.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Mjólkur og eggjalausir mjúkir kanilsnúðar með glassúri (vegan)

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5