Linda Ben

Mjólkurhristingur með grilluðum sykurpúðum

Recipe by
8 mín
Prep: 5 mín | Cook: 3 mín | Servings: 2 - 3 glös

ÍSKALDUR MJÓLKURHRISTINGUR Á ALLTAF VEL VIÐ, LÍKA Á VETURNAR EINS OG NÚNA.

_MG_5568Við fjölskyldan grilluðum okkur sykurpúða í einni af okkar mörgu útilegum í sumar. Það var því skemmtilegt að rifja upp góða tíma síðan í sumar og skella í þennann ljúffenga mjólkurhristing.

Mjólkurhristingurinn var heldur betur ekki lengi að klárast, hann var bara eiginlega of góður!

Ég ákvað að nota Häagen-Dazs vanillu ís sem grunn og sá sko ekki eftir því, þetta er einfaldlega lang besti ísinn að mínu mati!

Þessi uppskrift dugar í 2 til 3 glös.

MJÓLKURHRISTINGUR MEÐ GRILLUÐUM SYKURPÚÐU

Innihald:

  • 500 g Häagen-Dazs vanillu ís
  • 3 dl nýmjólk
  • 8 sykurpúðar

Aðferð:

  1. Ofninn er stilltur á 200°C grill.
  2. Sykurpúðunum er raðað á álpappír og settir inn í ofn í um það bil 2 mín. Gott er að fylgjast vel með sykurpúðunum á meðan þeir eru í ofninum og passa að þeir brenni ekki of mikið. Þegar þeir eru tilbúnir, takið þá úr ofninum og leyfið þeim að kólna.
  3. Setjið svo  ísinn ásamt mjólkinni og sykurpúðunum í stórt Nutribullet glas og blandið saman.

Hellið mjólkurhristingnum í glös og skreytið að vild til dæmis með þeyttum _MG_5593rjóma og sykurpúðum.

Njótið vel!

Ykkar, Linda Ben

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5