Linda Ben

Mjúk bláberjakaka með krönsí toppi og glassúr

Recipe by
1 klst
Cook: Unnið í samstarfi við Örnu Mjólkurvörur | Servings: 8 - 12 manns

Þessi mjúka bláberjakaka er algjört haustgúmmelaði 💜 Kakan er einstaklega mjúk og djúsí, með fullt af bláberjum, stökkum kanil- og púðursykurstoppi og ljúffengum rjómaglassúr.

Ég nota Lindu Ben vanillukökublönduna sem grunn (fæst í Krónunni og Bónus) og Arna gríska jógúrt með íslenskum aðalbláberjum (sem fæst í flest öllum matvöruverslunum) sem gerir kökuna einstaklega mjúka og gefur henni enn meira bláberjabragð. Krönsí toppurinn setur svo punktinn yfir i-ið og passar fullkomlega með mjúkri kökunni og sætum glassúrnum.

Dásamleg kaka með kaffinu á ljúfum haustdegi og svo falleg á borði með ferskum bláberjum og ætum blómum.

Mjúk bláberjakaka með krönsí toppi og glassúr

Mjúk bláberjakaka með krönsí toppi og glassúr

Mjúk bláberjakaka með krönsí toppi og glassúr

Mjúk bláberjakaka með krönsí toppi og glassúr

Mjúk bláberjakaka með krönsí toppi og glassúr

Mjúk bláberjakaka með krönsí toppi og glassúr

Mjúk bláberjakaka með krönsí toppi og glassúr

Mjúk bláberjakaka með krönsí toppi og glassúr   Mjúk bláberjakaka með krönsí toppi og glassúr

Mjúk bláberjakaka með krönsí toppi og glassúr

Mjúk bláberjakaka með krönsí toppi og glassúr

Mjúk bláberjakaka með krönsí toppi og glassúr

Mjúk bláberjakaka með krönsí toppi og glassúr

  • Ljúffeng vanillukaka – þurrefnablanda Lindu Ben
  • 3 egg
  • 1 ½ dl bragðlítil olía eða brætt smjör
  • 170 g Arna grísk jógúrt – ljúffeng haustútgáfa með íslenskum aðalbláberjum
  • 2 dl frosin bláber

Krönsí toppur

  • 100 g mjúkt smjör
  • 200 g púðursykur
  • 100 g hveiti
  • 1 tsk kanill

Rjóma glassúr

  • 200 g flórsykur
  • 2-4 msk rjómi
  • Fersk bláber sem skraut (ég skreytti líka með fjólum sem eru æt blóm)

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
  2. Setjið vanillukökuþurrefnablönduna í skál ásamt eggjum, olíu og grísku jógúrtinni. Hrærið saman og setjið í smurt 20 × 30 cm form (eða álíka stórt). Athugið að deigið er frekar stíft.
  3. Dreifið frosnum bláberjum yfir deigið.
  4. Útbúið krönsí toppinn með því að setja mjúkt smjör, púðursykur, hveiti og kanil í skál og blanda öllu vel saman. Dreifið blöndunni jafnt yfir deigið með bláberjunum.
  5. Bakið í u.þ.b. 40–45 mín. Gott er að stinga prjóni í miðja kökuna til að kanna hvort hún sé tilbúin.
  6. Kælið kökuna að stofuhita, takið hana úr forminu og setjið á fallegan disk eða bakka með smjörpappír undir eins og ég gerði.
  7. Útbúið glassúr með því að setja flórsykur í skál og byrja á því að setja 2 msk rjóma og hræra saman. Setjið meira af rjóma þar til þið eruð komin með þá áferð á glassúrinn sem ykkur finnst góður. Dreifið glassúrnum yfir kökuna og skreytið með ferskum bláberjum.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Mjúk bláberjakaka með krönsí toppi og glassúr

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5