Afskaplega mjúkur og hugglegur kokteill sem er fullkominn svona yfir vetrarmánuðina.
Mjúkur hunangs kokteill
Hunangssíróp
- 300 ml vatn
- 2 msk hunang
Kokteill
- Fullt glas af klökum
- 3 cl viskí
- hunangssíróp
- Appelsínubörkur
- Ferskt timjan
Aðferð:
- Setjið vatn ásamt hunangi í pott og hitið þar til hunangið er bráðnað. Kælið.
- Fyllið glas af klökum. Setjið viskí ásamt appelsínuberki og fersku timjan í glasið, toppið með hunangssírópi.
Ef þú prófar þessa uppskrift, láttu mig þá endilega vita! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Category: