Linda Ben

Möndlukaka drauma þinna

Recipe by
40 mín
| Servings: 8 - 12 manns

Möndlukaka drauma þinna

Ef þú elskar mjúka möndluköku með bleikum glassúr þá verður þú að prófa þessa! 💗

Þegar sonur minn smakkaði kökuna í fyrsta skipti tilkynnti hann mér að hún væri MIKLU BETRI en möndlukökurnar úr bakaríunum! Hann var líka alveg sannfærður um að öllum sem elska kökur myndi finnast þessi góð. Nú er hann búinn að smakka ansi margar kökur frá mér í gegnum tíðina og er orðinn frekar harður gagnrýnandi, svo mér fannst ég eiginlega verða að láta þessi orð hans fylgja með. 😍

Þessi dásamlega mjúka og safaríka möndlukaka er gerð úr Ljúffengri vanilluköku – þurrefnablöndunni minni, sem gerir baksturinn einstaklega einfaldan. Ég bæti marsípani og möndludropum út í deigið sem gefur kökunni þetta góða, klassíska möndlubragð sem svo margir elska.

Kakan er einstaklega rakamikil og mjúk að innan en með örlítið stökkum kanti. Hún er meira að segja svo rakamikil að ef maður þrýstir henni saman verður hún þétt og svolítið klístruð, á þennan allra besta hátt.

Ofan á fer fallegur bleikur glassúr sem gerir kökuna alveg einstaklega girnilega. Þetta er ein af þessum kökum sem eru fullkomnar með góðum kaffibolla, hvort sem það er fyrir sunnudagskaffið, afmæli eða bara þegar mann langar að baka eitthvað extra gott.

Ljúffenga vanillukökublandan mín fæst bæði í Krónunni og Hagkaupum. 💗

Möndlukaka drauma þinna

Möndlukaka drauma þinna

Möndlukaka drauma þinna  Möndlukaka drauma þinna

Möndlukaka drauma þinna

Möndlukaka drauma þinna

Möndlukaka drauma þinna

  • Ljúffeng Vanillukaka – þurrefnablanda Lindu Ben (fæst í Krónunni og Hagkaup)
  • 200 g marsípan
  • 3 egg
  • 1 dl vatn
  • 1 ½ dl bragðlítil olía (t.d. sólblómaolía)
  • 1 tsk möndludropar

Bleikur glassúr

  • 2 dl flórsykur
  • U.þ.b. 2 msk vatn
  • Bleikur matarlitur

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir- og yfirhita.
  2. Setjið þurrefnablönduna í skál ásamt eggjum, vatni, olíu og möndludropum. Rífið marsípanið gróflega út í skálina með rifjárni og hrærið öllu rólega saman í u.þ.b. 3 mínútur, eða þar til deigið er orðið vel blandað og mjúkt. Deigið verður frekar þykkt.
  3. Hellið deiginu í vel smurt hringform með gati í miðjunni sem er 22 cm í þvermál og bakið í u.þ.b. 25–30 mínútur, eða þar til kakan er bökuð í gegn. Látið kökuna kólna alveg áður en glassúrinn er settur á.
  4. Setjið flórsykur í skál og bætið fyrst 1 msk af vatni út í. Hrærið saman og bætið meira vatni út í, 1 tsk í einu, þar til glassúrinn er orðinn þykkfljótandi. Bætið bleikum matarlit út í og hrærið vel saman.
  5. Dreifið glassúrnum yfir kökuna og leyfið honum að renna örlítið niður með hliðunum.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Möndlukaka drauma þinna

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5