Skemmtileg tilbreyting til að njóta skyr og annarar hollustu á glæsilegan hátt. Morgun kókos banasplitt er kjörið til þess að bera fram í næsta brunch boði!
Morgun kókos bananasplitt (miðað við 2 splitt)
- 2 bananar, afhýddir og skornir í tvennt (langsum)
- 6 msk kókos skyr frá Örnu mjólkurvörum (2 dósir)
- 2 msk granóla
- Brómber og myntulauf til skreytingar
Aðferð:
- Skerið banana langsum í tvennt og raðið helmingunum saman.
- Setjið 3 msk af kókos skyri á hvern banana.
- Setjið 1 msk af granóla á hvern banana.
- Skreytið með brómberjum og myntu laufum.
Ef þú prófar þessa uppskrift, láttu mig þá endilega vita! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á myndinni á Instagram @lindaben
Ýttu hér til að fylgjast með á Instagram!
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Örnu Mjólkurvörur.
Category: