Linda Ben

Nautatacos með mangósalsa

Recipe by
15 mín
Cook: Unnið í samstarfi við SS | Servings: 4 manns

Hér höfum við svakalega góð nautatacos sem eru með sýrðum rjóma, mangósalsa, fersku króríander og hot sauce.

Þetta er afar fljótlegur og einfaldur réttur, en það tekur um það bil 15 mín að elda hann. Maður byrjar á því að útbúa mangósalsað með því að skera niður mangó, rauðlauk, papriku og kóríander, kreystir svo lime safa yfir.

Nautaþynnurnar frá SS eru algjör snilld í svona rétti en það eru hágæða nautakjöt sem er búið að skera niður í litla strimla svo maður einfaldlega smellir þeim á pönnuna, kryddar til og steikir.

Mér finnst alltaf gott að steikja vefjurnar fyrst aðeins á pönnu til að hita þær og gera þær örlítið stökkari. Maður setur svo sýrðan rjóma í botninn á vefjunum og setur svo nautakjötið og mangósalsað yfir. Ef þú fýlar sterkan mat þá mæli ég mikið með að setja svolítið af hot sauce yfir. Svo er alltaf gott að bæta við örlítið meira af kóríander og lime safa yfir.

Nautatacos með mangósalsa

Nautatacos með mangósalsa   Nautatacos með mangósalsa

Nautatacos með mangósalsa

  • 400 g Nautaþynnur frá SS
  • 1 tsk paprikukrydd
  • 1/2 tsk cumin
  • 1/4 tsk chillí krydd
  • 1/4 tsk cayenne krydd
  • Salt og pipar
  • 3 hvítlauksrif
  • Mangósalsa (uppskrift hér fyrir neðan)
  • Sýrður rjómi
  • Ferskt kóríander
  • Litlar maísvefjur
  • Cholula hot sauce (má sleppa ef þið viljið ekki hafa tacosið sterkt)

Mangósalsa

  • 1 Mangó
  • 1/2 rauðlaukur
  • 1 rauð paprika
  • 1 lúka ferskt kóríander
  • Safi úr 1 lime

Aðferð:

  1. Byrjið á því að útbúa mangósalsað með því að skera mangóið í litla bita, skerið einnig rauðlaukinn smátt niður og paprikuna. Skerið kóríanderið einnig smátt niður, blandið öllu saman í skál og kreystið lime safa yfir.
  2. Kryddið nautaþynnurnar með paprikukryddi, cumin, chillí, cayenne, salti og pipar. Steikið á pönnu þar til nánast eldaðar í gegn, rífið þá hvítlauksrifin yfir kjötið á pönnunni og steikið þar til kjötið er tilbúið.
  3. Steikið maísvefjurnar létt á pönnu til að hita þær.
  4. Setjið sýrðan rjóma í botninn, nautakjötið og mangósalsað, toppið með fersku kóríander og hot sauce.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Nautatacos með mangósalsa

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5