Núðluskál með hnetusósu
Þessi núðluskál með hnetusósu er bragðmikil, rjómakennd og alveg ótrúlega góð. Núðlurnar eru eldaðar beint í sósunni sem er gerð úr kókosmjólk, hnetusmjöri, rauðu karrýmauki og soja og verður því dásamlega þykk og bragðmikil.
Ég nota Oumph Formbar Fars í réttinn en mér finnst það einstaklega sniðug kjötlaus eða próteinrík lausn í rétti sem þessa. Farsið er auðvelt að móta eftir því hvað maður er að elda og það tekur vel í sig bragðið af kryddi og sósum. Hér steiki ég það með teriyakisósu og hvítlauk þar til það fær góða steikingarhúð og verður einstaklega bragðgott.
Stökk agúrka og ferskt kóríander koma svo með ferskleika á móti rjómakenndu hnetusósunni. Einfaldur og ljúffengur jurtabundinn réttur sem er tilvalinn þegar mann langar í eitthvað aðeins öðruvísi í kvöldmatinn. 🥢🥜🌿





Núðluskál með hnetusósu
- 750 g Formbar Fars frá Oumph
- 1 dl teriyakisósa
- 2 hvítlauksgeirar
- 110 g rautt karrýmauk
- 3-4 msk. hnetusmjör
- 3-4 msk. sojasósa
- 1 msk. púðursykur
- 500 ml vatn
- 2-3 tsk. nauta- eða grænmetiskraftur
- 800 ml kókosmjólk
- 150 g eggja- eða hrísgrjónanúðlur
- Agúrka
- Kóríander
Aðferð:
- Steikið Oumph á pönnu með teriyakisósu og rífið hvítlauksgeira út á. Setjið á disk og geymið.
- Setjið rautt karrýmauk, hnetusmjör, sojasósu og púðursykur á pönnuna. Blandið öllu saman og hellið svo vatninu á pönnuna og hrærið saman.
- Bætið einnig kókosmjólkinni og kraftinum út í og leyfið öllu að malla í 1–2 mín
- Bætið núðlunum út í sósuna og sjóðið þar til þær eru eldaðar í gegn.
- Skerið agúrkuna niður í sneiðar og saxið kóríanderið gróft niður.
- Setjið svolítið af núðlum í hverja skál og bætið við Oumphi, agúrku og kóríander.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar









