Linda Ben

Ofurfæðis Chia súkkulaðibúðingur – Rosalega góður eftirréttur

Recipe by
45 mín (eða yfir nótt)
Prep: 15 mín | Cook: 30 (eða yfir nótt) | Servings: 4 manns

Eftirréttur sem er jafn góður og hann er hollur er algjör snilld! Þegar ég finn uppskrift af þannig eftirrétt þá útbý ég hann endalaust oft. Sem dæmi má nefna þá hef ég gert heimalagaða bananaísinn óteljandi oft og í ótal útfærslum, enda alltaf jafn góður. Ef þið eigið eftir að prófa þá mæli ég með að þið gerið það núna.

Chia súkkulaðibúðingurinn er annað dæmi um svona hollann eftirrétt sem gefur ekkert eftir þegar kemur að góðu bragði.

Hann er það hollur að það væri alveg fullkomlega í lagi að borða búðinginn í morgunmat ef manni myndi langa það. Chia fræ eru stútfull af hollum trefjum, omega 3 fitusýrum og vítamínum. Kakó er svo fullt af andoxunarefnum sem ver frumurnar okkar og verndar okkur gegn ótímabærri öldrun.

Þennan eftirrétt er hægt að útbúa deginum áður. Chia fræin þurfa að fá smá tíma til þess að drekka vökvann í sig, en það er það sem gerir áferðina svona búðingslega. Ef þið eruð hins vegar að flýta ykkur þá ætti að vera nóg að láta búðinginn strax í blandarann og láta svo standa í 30 mín áður en hann er borinn fram.

Chia súkkulaðibúðingur

Innihald:

  • 1 dl chia fræ
  • 3 dl möndlumjólk
  • 1 dl hreint kakó
  • 1/2 – 1 dl hlynsíróp
  • 1 tsk vanilludropar
  • Klípa salt

Aðferð:

  1. Blandið saman chia fræjum og kakói í frekar stóra skál.
  2. Setjið möndlumjólkina út á ásamt hlynsírópi, vanilludropum og salti, hrærið saman með gaffli. Það tekur smá stund að hræra saman svo allt blandist vel.
  3. Ef nota á réttinn strax þá setjiði hann í blandara og maukið vel. Látið standa í minnst 30 mín.
  4. Ef nota á eftirréttinn daginn eftir þá er plastfilma sett yfir skálina og hún geymd inn í ísskáp. Daginn eftir er grauturinn settur í nutribullet glas eða blandara og látinn maukast í 1 mín. Það gerir það að verkum að grauturinn verður alveg silki mjúkur og áferðin verður æðislega góð.
  5. Setjið grautinn í sprautupoka ef ætlunin er að setja hann í glös eins og ég gerði, annars getið þið notað skeið til að setja hann í skálar. Skiptið grautnum í fjórar skálar/glös og skreytið með rjóma, berjum og súkkulaðispænum.

Chia súkkulaðibúðingur

Njótið vel!

Ykkar, Linda

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5