Ólífur með kavíar á rjómaostabeði
Þessar fylltu ólífur eru bæði fallegar og einstaklega bragðgóðar. Silkimjúkur rjómaostur með sítrónu og hvítlauk myndar fullkominn grunn sem passar einstaklega vel með söltum ólífum og grásleppukavíar. Smá ólífuolía og ferskt dill setja svo punktinn yfir i-ið.
Þetta er fullkominn smáréttur eða fordrykkjarsnarl þegar gesti ber að garði. Hann tekur örfáar mínútur að útbúa, lítur glæsilega út á borðinu og er alltaf eitthvað sem fólk spyr um uppskriftina að.




Ólífur með kavíar á rjómaostabeði
- 200 g rjómaostur
- 1-2 hvítlauksgeirar
- Börkur af 1 sítrónu
- 2 msk safi af ólífunum
- Salt og pipar
- Grænar ólífur, án steins
- Icelands finest – grásleppukavíar
- Extra virgin hágæða ólífuolía
- Ferskt dill
Aðferð:
- Setjið rjómaostinn í skál og rífið hvítlauksgeirana út í og rífið einnig börkinn af sítrónunni út í.
- Bætið smá safa af ólífunum út í, saltið og piprið eftir smekk. Blandið öllu saman og setjið í sprautupoka.
- Sprautið rjómaostinum á fallegan disk (það má líka smyrja rjómaostinum beint á diskinn ef þið viljið spara ykkur sprautupokann) og raðið ólífunum á rjómaostinn, gatið eftir steininn á að snúa upp svo auðvelt sé að fylla ólífurnar með kavíarnum.
- Setjið kavíar á hverja ólífu.
- Saxið ferskt dill og dreifið því yfir.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar


Category:







