Ommiletta fyllt með cheddarosti og hvítlaukssveppum er einfaldur og virkilega ljúffengur rétttur. Egg er með því hollara sem maður getur borðað og hef ég þá reglu að borða u.þ.b. 2 egg á dag. Egg eru nefninlega “fullt hús matar”, þau innihalda mikið af próteini, hollum fitum, vítamínum og steinefnum. Ég notaði hamingjueggin í þessa uppskrift en þau egg eru frá lausagönguhænum sem verpa í hreiður.
Ommilettan er létt og loftmikil en því nær maður fram með því að handþeyta eggin létt áður en maður setur þau á pönnuna. Best er að baka ommilettuna á vægum hita svo eggin brenni ekki, ég set alltaf lok á pönnuna til að þau bakist betur.
Ommiletta fyllt með cheddarosti og hvítlaukssveppum
- 3 stk hamingjuegg frá Nesbú
- 1 tsk smjör
- Salt
- Hvítlaukssveppir (uppskrift hér fyrir neðan)
- Ferskt timjan
- Cheddar ostur
- Svartur pipar
Aðferð:
- Brjótið eggin í skál og setjið smá salt í skálina, hrærið eggin saman þar til það myndast smá loftbólur í eggjunum.
- Hitið smjörið á lítilli pönnu og stillið á vægan hita. Hellið eggjunum út á pönnuna og setjið lok á pönnuna. Þegar botninn hefur bakast, takið þá sleikju og ýtið brúnunum inn í pönnuna á meðan þið hallið pönnunni þannig að óelduðu eggin ofan á fljóti yfir. Endurtakið fyrir allan hringinn.
- Setjið lokið aftur á þar til eggjakakan er öll bökuð í gegn. Eldið hvítlaukssveppina, uppskriftin er hér fyrir neðan.
- Rífið cheddar ost yfir eggjakökuuna ásamt hvítlausksveppunum og fersku timjan, veltið helmingnum af eggjakökunni yfir hinn helminginn þannig að hún lokist. Setjið á disk og rífið meiri cheddar ost yfir, setjið smá meira timjan yfir ásamt ólífu olíu og svörtum pipar.
Hvítlaukssveppir
- 100 g sveppir
- 1/2 msk smjör
- 1 hvítlauksgeiri
Aðferð:
- Skerið sveppina í 4 hluta (nema þetta séu stórir sveppir þá skeriði þá í smærri bita).
- Sejtið smjör á pönnuna ásamt sveppunum og rífið hvítlaukinn yfir, steikið á meðal hita þar til sveppirnir eru mjúkir í gegn.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar