Linda Ben

Ómótstæðileg Pestó og prosciutto samloka

Recipe by
5 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Vaxa | Servings: 2-3 manns

Ómótstæðileg Pestó og prosciutto samloka.

Þessi samloka er eins og lítið frí til Ítalíu í hverjum bita.

Fersk mozzarella, silkimjúk prosciutto skinka, ilmandi basilíka og bragðmikið grænt pestó koma saman í þessari einföldu en ótrúlega góðu samloku. Klettasalatið gefur henni ferskleika og smá piparkeim sem passar fullkomlega með mildri mozzarella og saltri hráskinkunni.

Ég elska svona samlokur á sumrin þegar maður vill eitthvað fljótlegt, ferskt og fallegt sem er samt fullt af bragði. Hún hentar jafn vel í hádegismat, nestið, lautarferðina eða sem hluti af veisluborði þegar gesti ber að garði ☀️✨

Klettasalatið og basilíkan frá VAXA gera svo gæfumuninn og gefa samlokunni þessa fersku „nýbúið að týna úr garðinum“ tilfinningu.

Svona uppskrift sem sannar að stundum eru einföldustu hráefnin þau allra bestu.Ómótstæðileg Pestó og prosciutto samloka

Ómótstæðileg Pestó og prosciutto samloka

Ómótstæðileg Pestó og prosciutto samloka

Ómótstæðileg Pestó og prosciutto samloka

Ómótstæðileg Pestó og prosciutto samloka

Ómótstæðileg Pestó og prosciutto samloka

  • 1 Baguette
  • Grænt pestó
  • 30 g klettasalat frá Vaxa
  • Prosciutto skinka
  • 1 fersk mozzarella kúla
  • 15 g basilíka frá Vaxa

Aðferð:

  1. Skerið baguette brauðið endilangt og smyrjið bæði efri og neðri hlutann með grænu pestói.
  2. Setjið klettasalatið á neðra brauðið, skerið mozzarella kúluna í sneiðar og leggið ofan á klettasalatið.
  3. Raðið prosciutto skinku yfir og dreifið basil yfir allt.
  4. Lokið með efra brauðinu og skerið í bita.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Ómótstæðileg Pestó og prosciutto samloka

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5