Linda Ben

Ómótstæðileg Popp brownie

Recipe by
2 klst og 40 mín
Cook: Unnið í samstafi við Nóa Síríus | Servings: U.þ.b. 16 bitar

Ég hélt að brownie gæti ekki orðið betri… þar til ég prófaði að toppa hana með súkkulaðipoppi! 😍🍿

Þessi brownie er einstaklega mjúk, djúsí og rík af súkkulaðibragði en það sem gerir hana svo sérstaka er stökka súkkulaðipoppið sem gefur kökunni ótrúlega skemmtilega áferð og gerir hvern bita enn betri.

Þetta er svona kaka sem vekur athygli á veisluborðinu og hverfur alltaf fyrst. Fullkomin þegar mig langar að baka eitthvað aðeins öðruvísi sem slær í gegn hjá bæði krökkum og fullorðnum

Ómótstæðileg Popp brownie

Ómótstæðileg Popp brownie

Ómótstæðileg Popp brownie

Ómótstæðileg Popp brownie

Ómótstæðileg Popp brownie

Ómótstæðileg Popp brownie

  • 200 g smjör
  • 300 g Síríus suðusúkkulaði
  • 300 g sykur
  • 4 egg
  • 60 g hveiti
  • 40 g kakóduft
  • 200 g Nóa Popp

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir- og yfirhita.
  2. Bræðið smjör og suðusúkkulaði varlega saman í potti.
  3. Þeytið eggin og sykurinn þar til þau verða létt og ljós.
  4. Hellið súkkulaðiblöndunni varlega saman við eggin og hrærið rólega á meðan.
  5. Blandið saman hveiti og kakó og hrærið saman við súkkulaðiblönduna.
  6. Smyrjið form sem er 24×24 cm ad stærð (eda álíka stórt), hellið deiginu í formið og bakið í u.þ.b. 35 mín.
  7. Dreifið súkkulaðipoppinu yfir kökuna og pressið því örlítið ofan í hana með spaða. Látið kökuna standa í um 2 klst við stofuhita áður en hún er skorin.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Ómótstæðileg Popp brownie

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5