Ég er afskaplega hrifin af þessum chiagraut og fæ ég mér hann nánast á hverjum virkum degi. Hann gefur mikla orku sem endist lengi ásamt því að vera afskaplega hollur.
Orkumikill chiagrautur
- 2 msk chia fræ
- 2 msk grófir hafrar
- 1 msk próteinduft
- 2 dl möndlumjólk
- 2 dl frosin ber (skipt í tvo hluta)
- Karamellaðar kókosflögur
Aðferð:
- Setjið chia fræ, hafra og próteinduft í skál og blandið saman.
- Bætið út i möndlumjólkinni og blandið saman.
- Bætið þá út í 1 dl af frosnum berjum, blandið saman og leyfið að standa í a.m.k. 1 klst (má vera yfir nótt inn í ísskáp t.d.)
- Berið fram með 1 dl af frosnum berjum og kókosflögum.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar
Category: