Ostafylltar kjúklingabringur í rjómalegi bornar fram með kartöflu smælki og fersku salati. Ekta haustmatur af einföldustu og bestu sort.
Bæði kjúklingurinn og kartöflurnar taka u.þ.b. 40 mín í ofninum, kartöflurnar þó örlítið styttri tíma mögulega, þannig það er mjög sniðugt að smella kjúklingnum fyrst inn í ofn og kartöflunum svo í beinu framhaldi.
Ostafylltar kjúklingabringur í rjómalegi
- 4 Kjúklingabringur
- 1 kryddostur með pipar frá Örnu Mjólkurvörum
- Rósmarín og timjan krydd
- 8 sneiðar Serrano skinka
- 2-3 dl rjómi
- 1 tsk kjúklingakraftur
- Ferskt rósmarín
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 200ºC.
- Þar sem þykkasti hluti bringanna er, stingið hníf inn í endann og myndið vasa fyrir ostsneiðar, eins djúpar og hægt er án þess að gera gat.
- Skerið ostinn í u.þ.b. 0,5 cm þykkar sneiðar og setjið inn í “vasann” á kjúklingabringunum. Kryddið með rósmarín og timjan og vefjið svo 2 stk serrano skinku utan um hverja bringu. Raðið í eldfast mót og bakið inn í ofni í 20 mín.
- Þegar 20 mín eru liðnar, hellið rjómanum út á mótið og blandið saman kjúklingakrafti saman við. Bakið áfram í 20 mín.
- Takið út úr ofninum og kryddið (og skreytið) með fersku rósmarín.
Kartöflu smælki
- 400 g litlar kartöflur með hýði
- 2-3 msk ólífu olía
- Salt og pipar
- Rósmarín krydd
- Timjan krydd
Aðferð:
- Hreinsið kartöflurnar vel undir köldu vatni og nuddið öll óhreinindi sem gætu leynst af. Skerið þær niður í 4 hluta hvor. Raðið í eldfast mót.
- Hellið olíu yfir og kryddið eftir smekk, blandið öllu vel saman.
- Bakið inn í ofni í u.þ.b. 30-40 mín.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Category:
Þetta var dásamleg uppskrift. Takk kæra Linda.
Ég setti 2 kjúllateninga í rjómann og við alveg sleiktum út um.
Kærar þakkir Linda ❤️
Þetta var dásamleg uppskrift. Takk kæra Linda.
Ég setti 2 kjúklingateninga í rjómann og við alveg sleiktum út um.
Kærar þakkir Linda ❤️