ñPinacolada íspinnar eru alveg hrikalega góðir! Maður einfaldlega maukar ananas, kókosrjóma og romm saman og frystir í íspinna boxum, einfalt og ótrúlega gott. Fullkomið til að njóta í sólinni í sumar.
Ef vilji er fyrir hendi þá er að sjálfsögðu hægt að bera drykkinn fram í glösum, en ég mæli þá með að bæta nokkrum klökum ofan í matvinnsluvélina.
Pinacolada íspinnar
- 1 Ananas
- 1 dós kókosmjólk
- 60 ml romm
Aðferð:
- Skerið börkinn frá og kjarnhreinsið ananasinn, setjið í matvinnsluvél.
- Opnið dósina af kókosmjólkinni varlega, takið aðeins þykka hlutann af kókosmjólkinni upp úr dósinni og setjið í matvinnsluvélina, hendið rest eða notið seinna í annan rétt.
- Setjið romm út í matvinnsluvélina og maukið.
- Hellið maukinu ofan í íspinnabox og frystið í a.m.k. 6 klst.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben svo ég sjái afraksturinn.
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben