Pinsa með pepperóní, peru og gráðosti
Það þarf ekki alltaf að vera flókið til að verða virkilega gott. Þessi pinsa er fullkomið dæmi um það. Stökkur og loftkenndur Pinsami botn, bragðmikil pepperóní, sæt pera og kremkenndur gráðostur mynda saman ótrúlega góða bragðsamsetningu sem kemur manni skemmtilega á óvart.
Þegar mig langar að útbúa fljótlegan en virkilega góðan kvöldmat gríp ég oft í Pinsami pinsadeigin sem fást í Krónunni. Þau eru ótrúlega einföld í notkun og verða stökk að utan en mjúk og loftkennd að innan, alveg eins og góð pinsa á að vera. Deigin eru handunnin á Ítalíu úr blöndu af hveiti, hrísgrjóna- og sojamjöli og látin hefast hægt í yfir 24 klukkustundir, sem gefur þeim einstaka áferð og bragð.
Það eina sem þarf að gera er að setja uppáhalds áleggið sitt á deigið og baka í örfáar mínútur. Útkoman er alltaf jafn ljúffeng og það er svo auðvelt að gera veitingahúsastemningu heima í eigin eldhúsi.
Þessi útgáfa er ein af mínum uppáhalds. Salt pepperóníið, sæta peran, gráðosturinn og ferska basilíkan passa einstaklega vel saman og úr verður pinsa sem er bæði einföld, falleg og algjör sælkeramáltíð.






Pinsa með pepperóní, peru og gráðosti
- Pinsami pinsabotn
- Pinsasósa frá Mutti
- Rifinn mozzarella
- Pepperóní frá SS
- 1 pera
- gráðostur
- Fersk basilíka
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 250°C, undir og yfir hita.
- Setjið vel af pinsasósu á botninn og svo rifinn ost yfir.
- Dreifið vel af pepperóní á botninn. Skerið peruna þunnt niður (mér finnst best að nota mandolín) og dreifið yfir ásamt gráðosti.
- Bakið í ofni í 5 mín eða þar til osturinn hefur bráðnað og botninn er aðeins byrjaður að gyllast.
- Skerið í sneiðar og berið fram með ferskri basilíku.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar










