Hér höfum við alveg dásamlega mjúkt og lúffengt piparkökubrauð sem er án eggja og mjólkur, það er einnig vegan.
Það er afar einfalt að útbúa það en maður byrjar á því að blanda saman þurrefnunum og bætir svo brautu hráefnunum út í. Bakar svo brauðið í 30 mín og berð það svo fram með mjúku smjöri og osti þegar það hefur kólnað svolítið.
Piparkökubrauð (v)
- 200 g hveiti
- 2 tsk kanill
- 2 tsk engifer
- 1/4 tsk negull
- 1/2 tsk matarsódi
- 1/2 tsk lyftiduft
- 100 g kókosolía
- 1 dl Veru hafrajógúrt með karamellu og perum
- 1 dl hlynsíróp
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 180°C, undir og yfir hita.
- Setjið hveiti, kanil, engifer, negul, matarsóda og lyftiduft í skál, hrærið saman.
- Bræðið kókosolíuna og hellið henni út í skálina ásamt hlynsírópinu, blandið vel saman við.
- Takið brauðform og setjið smjörpappír í formið, þið getið líka smurt það en mér finnst þetta fljótlegra og þægilegra. Hellið deiginu í smjörpappírklædda formið og sléttið úr deiginu. Bakið í u.þ.b. 25 mín eða þar til brauðið er bakað í gegn.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar
Category: