Linda Ben

Mjúk Pipp Súkkulaðikaka

Recipe by
1 klst
Cook: Unnið í samstarfi við Nóa Síríus | Servings: 8 manns

Ef þú elskar samsetninguna af súkkulaði og myntu þá er þessi kaka algjör draumur 😍✨

Mjúk og djúsí súkkulaðikaka myndar grunninn en það sem gerir kökuna alveg sérstaka er silkimjúkt myntu Pipp krem fullt af litlum bitum af Pipp. Kremið verður létt, loftmikið og með fullkomnu jafnvægi milli djúps súkkulaðibragðs og ferskrar myntu 🌿🍫

Til að toppa allt saman er svo ríkulegur súkkulaðitoppur sem rennur fallega yfir kremið og gerir kökuna bæði glæsilega og ómótstæðilega góða. Þetta er svona kaka sem vekur alltaf athygli á veisluborðinu og hverfur furðu hratt þegar fólk fær sér fyrsta bitann.

Mér finnst líka svo skemmtilegt hvað hún er einföld í gerð. Með hálfum pakka af Ljúffengri súkkulaðiköku þurrefnablöndunni verður botninn einstaklega mjúkur og safaríkur og passar fullkomlega með myntubragðinu. Þú finnur súkkulaðiköku þurrefnablönduna mína í Krónunni og Hagkaup.

Fullkomin kaka fyrir afmæli, saumó, helgarkaffið eða fyrir alla sem hafa veikleika fyrir Pipp súkkulaði

 Pipp súkkulaðikaka

Pipp súkkulaðikaka

Pipp súkkulaðikaka

Pipp súkkulaðikaka

Pipp súkkulaðikaka

Pipp súkkulaðikaka

Pipp súkkulaðikaka

Pipp súkkulaðikaka

Mjúk Pipp Súkkulaðikaka

  • 1/2 pakki Ljúffeng súkkulaðikaka þurrefnablanda Lindu Ben
  • 2 egg
  • 0,75 dl bragðlítil olía eða brætt smjör
  • 1/2 dl vatn

Pipp krem

  • 200 g mjúkt smjör
  • 200 g flórsykur
  • 1/2 dl rjómi
  • 100 g Pipp með myntufyllingu

Súkkulaðitoppur

  • 100 g Pipp með myntufyllingu
  • 1/2 dl rjómi

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 175°C undir og yfir hita.
  2. Hrærið saman þurrefnablöndunni, eggjum, vatni og olíu/bræddu smjöri.
  3. Hellið deiginu í smurt 20 cm smelluform og bakið í 20 mín eða þar til kakan er bökuð í gegn. Kælið að stofuhita.
  4. Bræðið saman 1/2 dl rjóma og 100 g Pipp súkkulaði í potti og kælið að stofuhita.
  5. Þeytið saman mjúkt smjör og flórsykur þar til mjög mjúkt, létt og loftmikið. Brjótið 100 g Pipp súkkulaði út í kremið og þeytið. Súkkulaðið mun brotna meira í hrærivélinni og verða mis stórt. Bætið rjómanum út í og þeytið þar til afskaplega létt og loftmikið krem með súkkulaðibitum hefur myndast.
  6. Smyrjið kreminu á kælda kökuna og hellið kælda súkkulaðitoppinum yfir.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Pipp súkkulaðikaka

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5