Linda Ben

Pizzadog – chili-ostapylsa í pizzadeigi

Recipe by
20 mín
Cook: Unnið í samstarfi við SS

Það er alltaf gaman að taka klassískar pylsur og gefa þeim nýtt og skemmtilegt tvist! 🌭🍕Undanfarið hef ég séð mikið af pylsum elduðum í pizzadeigi á samfélagsmiðlum og ég stóðst ekki freistinguna á að taka minn eigin snúning á þessari hugmynd.

Þessar pizzupylsur eru unaðslega góðar! Bragðmiklar chili-ostapylsu með bráðnum mozzarellaosti umluktar ljúffengu pizzadeigi. Síðan er punkturinn yfir i-ið heimagert relish sem er bæði ferskt og fullt af bragði.

Ég notaði Pylsur fagmannsins með chili og osti frá SS, sem passa einstaklega vel í þessa uppskrift. Þær eru safaríkar, bragðmiklar og gera það að verkum að það þarf lítið annað til að búa til virkilega skemmtilegan rétt.

Þetta er fullkominn matur fyrir pizzakvöld, grillpartý, eða bara þegar ykkur langar að prófa eitthvað aðeins öðruvísi sem bæði krakkar og fullorðnir eiga eftir að elska 😍

Pizzadog - chili-ostapylsa í pizzadeigi

Pizzadog - chili-ostapylsa í pizzadeigi

Pizzadog - chili-ostapylsa í pizzadeigi

Pizzadog - chili-ostapylsa í pizzadeigi

Pizzadog – chili-ostapylsa í pizzadeigi

  • Pizzadeig
  • Pylsur fagmannsins – chili-osta frá SS
  • Ferskur mozzarellaostur (má líka nota venjulegan rifinn mozzarella)
  • Heimagert relish (uppskrift hér fyrir neðan)
  • Gult sinnep
  • Graslaukur

Heimagert relish

  • 1 laukur
  • 1 msk smjör
  • 2 hvítlauksgeirar
  • 1-2 ferskir jalapenó
  • 2 stórar súrar gúrkur
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Byrjið á því að útbúa relishið með því að saxa laukinn smátt niður og steikja á pönnu upp úr smjöri.
  2. Rífið hvítlauksgeirana út á pönnuna og steikið með.
  3. Saxið jalapenóana og súru gúrkurnar smátt niður og bætið út á pönnuna. Saltið og piprið eftir smekk. Leyfið öllu að malla svolítið saman þar til orðið mjúkt og gott.
  4. Skerið niður ferska mozzarella ostinn ef þið eruð að nota hann.
  5. Ef þið notið pizzaofn, kveikið þá á honum og grillið pulsurnar fyrst aðeins í ofninum svo þær hitni vel en fulleldist ekki.
  6. Ef þið notið venjulegan ofn, kveikið þá á honum og stillið á 250°C, undir hita og blástur.
  7. Skiptið pizzadeiginu í 4 hluta og teygjið það út svo það sé eins og pulsubrauð. Gerið það þannig að það sé þynnra í miðjunni og þykkara í köntunum. Raðið ostinum í miðjuna á deiginu og pulsuna yfir, gott að þrýsta pulsunni smá ofan í deigið og hjúfra smá um hana. Setjið pizzadoginn inn í ofn og bakið þar til deigið er byrjað að gyllast og pylsan heit í gegn.
  8. Berið fram með heimagerða relishinu, gulu sinnepi og smátt söxuðum graslauk.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

Pizzadog - chili-ostapylsa í pizzadeigi

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5