Ég elska þegar eftirréttur nær að vera bæði ótrúlega góður og próteinríkur 😍
Ég er að elska Prótein með kollageni frá Örnu. Drykkurinn inniheldur 36 g af próteini og er svo ótrúlega bragðgóður, hann minnir alveg óneitanlega á bráðinn ís með jarðaberjum þegar maður fær sér hann beint úr fernunni.
Þessi próteinís er silkimjúkur, kremkenndur og minnir eiginlega meira á ísbúðarís en hefðbundinn próteinís. Jarðaberja- og vanillubragðið úr Prótein með kollageni frá Örnu passar einstaklega vel með hvíta súkkulaðinu og bananinn hjálpar til við að gera áferðina extra mjúka og creamy 🍓
Þetta er fullkomið þegar mann langar í eitthvað sætt eftir kvöldmatinn en vill um leið fá góðan skammt af próteini og kollageni. Svo er hann líka svo fallegur borinn fram með smá hvítri súkkulaðisósu yfir 😍
Svona ís sem fær mann til að gleyma því að hann er próteinríkur.




Próteinís með hvítu súkkulaði
- ½ banani
- 300 ml Arna Prótein með kollageni Jarðaberja- og vanillubragð
- 50 g hvítt súkkulaði – skipt í tvennt
Aðferð
- Setjið banana, Örnu prótein og 25 g hvítt súkkulaði í blandara og blandið saman. Hellið í Ninja creami glas og geymið í frysti í a.m.k. 24 klst.
- Setjið frosna blönduna í Ninja Creami og stillið á Light Ice Cream.
- Skafið meðfram hliðunum til að fjarlægja ísnálarnar sem liggja meðfram hliðunum. Setjið það sem eftir er af hvíta súkkulaðinu og ýtið á respin.
- Setjið ísinn í skálar og berið fram með hvítri íssósu ef þið viljið (líka hægt að bræða smá hvítt súkkulaði með smá kókosolíu).
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar








