Ef þú ert að leita þér að einhverju ótrúlega ljúffengu sælgæti sem er samt ekki óhollt þá skaltu endilega smella í þessar hollu og próteinríku browniekúlur. Þær eru algjörlega sykurlausar en bragðast samt eins og alvöru browniekúlur.
Þær samanstanda að mestu af kjúklingabaunum og döðlum sem gerir áferðina á þeim alveg einstaklega djúsí og mjúka svo þær algjörlega bráðna í munninum.
Þessar próteinríku browniekúlur eru einnig glúteinlausar þar sem þær innihalda kókoshveiti.
Hnetusmjörið kemur með ómótstæðilegt bragð og próteinduftið eykur svo próteinmagnið ennþá frekar í þessum ljúffengu kúlum.
Að sjálfsögðu innihalda þær líka hreint kakóduft frá Nóa Síríus og eru hjúpaðar í sykurlausa rjómasúkkulaðinu sem er alveg svakalega gott!
Það er upplagt að smella í þessar kúlur og geyma þær svo inn í ísskáp eða frystinum, fá sér svo nokkrar þegar manni langar í eitthvað sætt og gott.
Próteinríkar browniekúlur
- 200 g döðlur
- 300 g kjúklingabaunir
- 60 g kókoshveiti
- 40 g hreint sælkerabaksturs kakóduft
- 25 g súkkulaðipróteinduft
- 50 g hnetusmjör
- 2-3 msk möndlumjólk (eða eftir því sem þarf, mismunandi eftir því hversu blautar döðlurnar eru)
- 300 g sykurlaust rjómasúkkulaði frá Nóa Síríus
Aðferð:
- Setjið döðlurnar í skál og hellið sjóðandi heitu vatni yfir þær og leyfið þeim að standa í a.m.k. 5 mín í heita vatninu.
- Hellið vökvanum af kjúklingabaununum.
- Setjið allt nema sykurlausa rjómasúkkulaðið ofan í matvinnsluvél og blandið þar til allt hefur maukast.
- Útbúið kúlur úr deiginu úr 1 msk af deigi.
- Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og hjúpið hverja kúlu, látið stirðna inn í ísskáp.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar