Linda Ben

Próteinríkt kjúklinga og ostasalat

Recipe by
5 mín
Cook: Unnið í aið í samstarfi við Ísam

Próteinríkt kjúklinga og ostasalat

Þetta próteinríka kjúklinga og ostasalat er svona réttur sem manni langar að gera aftur og aftur 😍

Ef þú hefur einhverntíman prófað að gera ostasalat sem var rosa vinsælt fyrir nokkrum árum, þá veistu hverju þú mátt búast við af þessu salati. Þetta salat er nefninlega mjög svipað því nema mun próteinríkara, hollara og að mínu mati betra.

Safaríkur kjúklingur, kremkennt dressing með dijon sinnepi og hunangi, stökkur sellerí og fersk vínber gefa salatinu ótrúlega gott jafnvægi milli salts, sætu og crunch. Svo kemur hvítmygluosturinn með extra „wow“ faktor. Ég notaði chilli Auði sem gefur smá hita og ótrúlega gott bragð sem passar fullkomlega með kjúklingnum og vínberjunum. Það sem ég fýla smá spicy mat setti ég einn ferskan jalapenó út í, salatið verður alls ekki sterkt heldur með skemmtilegu kikki.

Kotasælan gerir salatið líka extra próteinríkt og kremkennt án þess að verða þungt, sem gerir þetta að fullkomnum hádegisverði eða eftir-æfinga máltíð. Þetta er líka upplagt til að gera stóran skammt af og eiga til inn í ísskáp þegar manni langar í eitthvað gott.

Þetta er líka fullkomið til að gera áður en vinkonurnar koma þegar þú vilt bjóða þeim upp á dýrindis ídýfu sem á samt ekki að vera of óholl.

Með stökku Finn Crisp snakki með roasted peppers & chipotle verður þetta svo algjörlega ávanabindandi combo. Mjúkt, stökkt, sætt, spicy og ferskt allt í einu ✨

Próteinríkt Kjúklinga og ostasalat

Próteinríkt Kjúklinga og ostasalat

Próteinríkt Kjúklinga og ostasalat

Próteinríkt Kjúklinga og ostasalat

Próteinríkt Kjúklinga og ostasalat

Próteinríkt kjúklinga og ostasalat

  • 400 g kjúklingur fulleldaður
  • 170 g hvítmygluostur (ég notaði chili auði)
  • 2 sellerístilkar
  • 3 dl vínber
  • 1 jalapenó fersur
  • 1 dl kotasæla
  • 1 msk mæjónes
  • 1 tsk sterkt dijon sinnep
  • 1 tsk hunang
  • Salt og pipar
  • Finn Crisp snakk með roasted peppers & chipotle

Aðferð:

  1. Skerið kjúklinginn og ostinn smátt niður og setjið í skál.
  2. Skerið sellerístilkana og jalapenóinn mjög smátt niður, bætið ofan í skálina ásamt vínerbjum sem eru skorin 4 hluta.
  3. Bætið kotasælu, mæjó, sinnepi og hunangi út í. Hrærið öllu saman og smakkið til með salti og pipar.
  4. Berið fram með Finn Crisp snakki.

Próteinríkt Kjúklinga og ostasalat

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5