Próteinríkt súkkulaði French toast
Þetta próteinríka súkkulaði French toast er dásamleg leið til að gera klassískt French toast aðeins próteinríkara og um leið gefa því ljúffengt súkkulaðibragð.
Í stað þess að nota venjulega mjólk hræri ég Arna Prótein með súkkulaðibragði saman við eggin. Brauðið fær að draga blönduna vel í sig áður en það er steikt upp úr smjöri þar til það er fallega gyllt að utan og mjúkt að innan.
Ég toppaði mitt með banana, ferskum rifsberjum og smá hlynsírópi en það er auðvitað hægt að leika sér endalaust með toppinn. Fullkomið í morgunmat eða brunch þegar mann langar í eitthvað sætt, gott og próteinríkt. 🥰






Próteinríkt súkkulaði French toast
- 2 egg
- 150 ml Arna Prótein með súkkulaðibragði
- 4 brauðsneiðar
- 1 msk smjör
Toppur (má skipta út fyrir annað)
- Banani
- Rifsber
- Hlynsíróp
Aðferð:
- Hrærið saman eggjum og Örnu prótein í fat sem rúmar 2 brauðsneiðar.
- Leggið tvær brauðsneiðar í einu ofan í fatið og snúið þeim við svo þær dragi eggjablönduna vel í sig á báðum hliðum. Mér finnst gott að stinga brauðið varlega með gaffli svo það dragi blönduna enn betur í sig.
- Setjið vel af smjöri á pönnu og steikið brauðsneiðarnar á báðum hliðum við vægan hita þar til þar til brauðið er fallega brúnað og eggjablandan elduð í gegn.
- Raðið French toastinu á diska og toppið með banana, rifsberjum og hlynsírópi.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar










