Linda Ben

Próteinríkur bleikur límonaði smoothie

Recipe by
5 mín
| Servings: 1 drykkur

Þessi próteinríki bleiki límonaði smoothie er með þeim betri sem ég fæ. Áferðin er silkimjúk og hæfilega þykk. Drykkurinn er sætur og súr á sama tíma, algjörlega ómótstæðilegur.

Hann inniheldur hafraskyr frá Veru og er því án mjólkurvara og er vegan, það er próteinríkt og gefur drykknum gott bragð og mjúka áferð. Hann inniheldur einnig frosinn banana, frosin hindber, kasjúhnetur og sítrónusafa.

Það er mjög sniðugt að setja banana sem eru við það að verða ofþroskaðir í fyrsti. Maður þarf bara að muna að taka þá úr hýðinu fyrst og brjóta þá aðeins niður. Ég set þá yfirleitt box en það er líka hægt að nota frystipoka. Frosnir bananar eru algjört lostæti í smoothie-a og maður kemur í veg fyrir matarsóun með því að nýta þá á þennan hátt.

próteinríkur bleikur límonaði smoothie

próteinríkur bleikur límonaði smoothie

próteinríkur bleikur límonaði smoothie

Próteinríkur bleikur límonaði smoothie

  • 1 frosinn banani
  • 200 frosin hindber
  • 50 g kasjúhnetur
  • Safi úr 1 sítrónu
  • 150 g hafraskyr með jarðaberjum frá Veru Örnudóttir

Aðferð:

  1. Setjið öll innihaldsefni ofan í blandara og blandið þar til allt hefur maukast saman. Ef blandan er of þykk fyrir blandarann er hægt að bæta 1 msk af vatni út í til að auðvelda blandaranum lífið.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

próteinríkur bleikur límonaði smoothie

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5