Þessar dásamlega mjúku og góðu pumpkin spice-pönnukökur eru algjör haustdraumur! 🍂🥞
Pönnukökurnar eru gerðar úr Ljúffengu pönnukökuþurrefnablöndunni minni sem gerir baksturinn einstaklega einfaldan. Þú ffinnur hana í Krónunni. Ég bæti pumpkin spice-kryddblöndu og rjómasúkkulaðidropum út í deigið sem gefur pönnukökunum dásamlegt kryddbragð og litla bráðnaða súkkulaðibita í hverjum munnbita.
Pumpkin spice er kryddblanda sem inniheldur yfirleitt kanil, engifer, múskat og fleiri hlýleg krydd sem minna svo mikið á haustið. Kryddið passar einstaklega vel með sætu rjómasúkkulaðinu og þegar pönnukökurnar eru bornar fram volgar með þeyttum rjóma og hlynsírópi verður útkoman alveg ómótstæðileg.
Þetta eru fullkomnar pönnukökur fyrir kósý helgarmorgna, brunch með fjölskyldunni eða þegar mann langar einfaldlega að gera aðeins extra vel við sig.
Einfaldar í útbúningi, mjúkar og stútfullar af góðu haustbragði!






Pumpkin Spice Pönnukökur
- Ljúffengar pönnukökur – þurrefnablanda Lindu Ben
- 1 egg
- 60 g smjör
- 2 ½ dl mjólk
- 2 tsk pumpkin spice kryddblanda (fæst t.d. frá kryddhúsinu)
- 75 g rjómasúkkulaðidropar
Toppur
- Hlynsíróp
- Þeyttur rjómi
Aðferð:
- Bræðið smjörið á pönnunni sem þið munið steikja pönukökurnar á.
- Setjið pönnukökuþurrefnablönduna í skál ásamt eggi, bræddu smjöri, mjólk og pumpkin spice-kryddblöndunni. Hrærið saman þar til deigið er orðið vel blandað. Bætið rjómasúkkulaðidropunum út í og blandið varlega saman við
- Hitið pönnuna yfir meðalhita og steikið u.þ.b. 1 dl af deiginu í einu. Snúið pönnukökunum við þegar loftbólur byrja að myndast á yfirborðinu og kantarnir hafa tekið sig. Steikið áfram þar til þær eru fallega gylltar og bakaðar í gegn.
- Berið pönnukökurnar fram volgar með þeyttum rjóma og hlynsírópi.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar










