Uppskriftir gerast varla einfaldari en af þessum gómsæta og safaríka ranch kjúklingarétt. En hún inniheldur aðeins þrjú hráefni: kjúkling, ranch sósu og brauðteninga!
Ranch kjúklingur, uppskrift:
- 4 kjúklingabringur
- 240 ml ranch sósa
- 5 dl bollar muldir brauðteningar eða bragðgott brauðrasp
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 200ºC.
- Byrjið á því að mylja brauðteningana og setjið í stóra skál
- Setjið sósuna í aðra stóra skál.
- Veltið hverri kjúklingabringu fyrst upp úr sósunni og svo vel upp úr brauðteninga mynslum þannig að þeir þekji bringuna.
- Setjið bringurnar í eldfast mót og bakið í ofni í um það bil 45 mín eða þangað til þær eru eldaðar í gegn.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Njótið vel!
Ykkar, Linda Benediktsdóttir
Öll hráefni í þessa uppskrift fást í Kosti.
Category: