Hvað er jólalegra en rauðar smákökur? Ég alveg kol féll fyrir þessum Red Velvet smákökum sem eru svo einfaldar að útbúa!
Kökurnar eru alveg himneskar á bragðið, eru þéttar, mjúkar og svolítið klístraðar.
Það sem þú þarft er:
- 1 pakki Red Velvet kökumix frá Betty Crocker
- 230 g rjómaostur
- 120 g smjör
- 1 stórt egg
- 1 tsk vanilla
- 100 g hvítt súkkulaði frá Odense
- 1/2 bolli flórsykur
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 170°C.
- Byrjað er á að hræra saman rjómaost og smjör þangað til blandað verður létt.
- Þá er Red Velvet mixi bætt út í ásamt eggi og vanillu og hrært saman, deigið verður mjög þétt.
- Hvíta súkkulaðinu er svo blandað saman við með sleif.
- Flórsykurinn er settur í litla skál.
- Deigið er tekið með ísskeið eða tveimur matskeiðum og sett ofan í skálina með flórsykrinum, veltið deiginu lítillega eða þangað til það er þakið þunnu lagi af flórsykri, hnoðið svo lauslega deigið í kúlu og setjið á smjörpappír (Þetta er gert vegna þess að deigið er mjög klístrað og ef þið setjið deigið ekki fyrst í flórsykurinn þá er nær ómögulegt að hnoða kúlur).
- Látið 3 cm vera á milli kúlanna því þær munu svo fletjast út í ofninum.
- Bakið kökurnar í 10-12 mín. Leyfið þeim að kólna svolítið áður en þær eru teknar af smjörpappírnum.
- Sigtið restinni af flórsykrinum yfir kökurnar og þið fáið þessar dásamlega fallegu og jólalegu smákökur!
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Category: