Linda Ben

Ristretto Martini kokteill

Recipe by
15 mín
| Servings: Einn drykkur

Ristretto Martini kokteill.

Þessi kokteill minnir á espresso martini nema kaffibragðið á þessum er dýpra og kraftmeira, ótrúlega góður kokteill sem hentar einstaklega vel sem eftirdrykkur eftir góða máltíð.

Ristretto Martini kokteill

Ristretto Martini kokteill

Ristretto Martini kokteill

  • 30 ml Galliano kaffilíkjör
  • 30 ml Vodka
  • 30 ml espresso kaffi
  • Klakar

Aðferð:

  1. Uppskriftin miðast við 1 drykk, tvöfaldið ef þið viljið gera tvo drykki.
  2. Hellið upp á espresso kaffi (mjög sterkt kaffi) og kælið það, gott að geyma inn í ísskáp í 30 mín eða setja kaffibollann í klakabað (ath ekki setja klaka í kaffið því þá þynnist það út)
  3. Fyllið kokteilhristara af klökum og setjið Galliano Ristretto í hristarann ásamt vodka og kaffinu. Hristið mjög vel og lengi svo það myndist flott froða.
  4. Hellið úr kokteilhristaranum í gegnum sigti ofan í glasið.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Ristretto Martini kokteill

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5