Linda Ben

Rjómalagað rauðvínspasta

Recipe by
30 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Innnes | Servings: 3-4 manns

Þetta rjómalagaða rauðvínspasta er algjörlega dásamlegur haustréttur. Bragðmikill, silkimjúkur og einstaklega notalegur🍷🍝

Sósan er gerð úr sveppum, lauk, hvítlauk, kryddjurtum og rauðvíni sem fær að sjóða niður áður en rjómanum er bætt út í. Rauðvínið gefur sósunni djúpt og ríkulegt bragð sem passar ótrúlega vel með sveppunum og rjómanum. Tortiglioni-pastað grípur svo rjómalöguðu sósuna einstaklega vel og safaríkur kjúklingurinn gerir þetta að góðri og mettandi máltíð.

Fullkominn pastaréttur fyrir köld haustkvöld þegar mann langar í eitthvað aðeins extra gott, en samt einfalt að útbúa. 🍷✨

Rjómalagað rauðvínspasta

Rjómalagað rauðvínspasta

Rjómalagað rauðvínspasta

Rjómalagað rauðvínspasta

Rjómalagað rauðvínspasta

  • 750 g kjúklingalundir
  • 300 g tortiglioni pasta
  • Kjúklingakryddblanda
  • 1 msk smjör
  • 250 g sveppir
  • 1 laukur
  • 2-3 hvítlauksgeirar
  • 1 msk tómatpúrra
  • 1 tsk oreganó
  • ½ tsk timjan
  • Salt og pipar
  • 1 ½ dl rauðvín, ég nota Adobe Merlot
  • 250 ml rjómi
  • U.þ.b. 1-2 dl pastavatn

Aðferð:

  1. Kryddið kjúklinginn og bakið hann í ofni við 200°C í u.þ.b. 25-30 mín eða þar til hann er eldaður í gegn.
  2. Setjið vatn í pott og náið upp suðu. Saltið vatnið, bætið pastanu út í og sjóðið þar til það er al dente. Geymið svolítið af pastavatninu áður en vatninu er hellt af.
  3. Skerið laukinn og sveppina niður og steikið upp úr smjörinu þar til þeir eru mjúkir og fallega brúnaðir. Rífið hvítlauksgeirana út á og steikið í stutta stund.
  4. Bætið tómatpúrru, oreganó og timjan á pönnuna og blandið vel saman. Kryddið með salti og pipar.
  5. Hellið rauðvíninu á pönnuna og látið sjóða niður í 2–3 mín.
  6. Hellið rjómanum út á og látið sósuna malla í nokkrar mínútur.
  7. Bætið pastanu út á pönnuna ásamt svolítið af pastavatninu og látið malla þar til samlagað.
  8. Skerið kjúklinginn í bita og bætið honum á pönnuna. Blandið öllu saman og berið fram.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

Rjómalagað rauðvínspasta

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5