Linda Ben

Rjómalöguð tortellinisúpa með nautahakki

Þessi rjómalagaða tortellinisúpa er dásamlegur haustmatur. Hlý, matarmikil og stútfull af góðu bragði. Í henni er nautahakk, tortellini, sæt kartafla og spínat í bragðmikilli tómat- og rjómasúpu sem verður silkimjúk og ótrúlega góð.

Rjóminn frá Örnu Mjólkurvörum gerir súpuna einstaklega mjúka og rjómakennda og passar svo vel með tómötunum og kryddunum. Þetta er einn af þessum einföldu réttum sem hægt er að elda í einum potti og bera fram fyrir alla fjölskylduna  😍

Rjómalöguð Tortellini súpa

Rjómalöguð Tortellini súpa

Rjómalöguð Tortellini súpa

Rjómalöguð tortellinisúpa með nautahakki

  • 500 g nautahakk
  • 1 tsk hvítlaukskrydd
  • 1 tsk paprikukrydd
  • 1 tsk oregaó
  • Salt og pipar
  • ¼ tsk chilí flögur
  • 2-3 hvítlauksgeirar
  • 1 sæt kartafla
  • 400 g passata
  • 1 l vatn
  • 250 g Tortellini
  • 500 ml rjómi frá Örnu Mjólkurvörum
  • 50 g Baby leaf eða spínat
  • 1 tsk nautakraftur

Aðferð

  1. Setjið nautahakkið í stóran pott, bætið hvítlaukskryddi, paprikukryddi, oreganó, chilíflögum, salti og pipar út í og steikið þar til hakkið er brúnað.
  2. Afhýðið sætu kartöfluna, skerið hana í litla bita og bætið út í pottinn. Steikið áfram í nokkrar mínútur.
  3. Rífið hvítlauksgeirana út í pottinn og steikið létt.
  4. Bætið passata, vatni og nautakrafti út í og látið sjóða þar til sætu kartöflurnar eru farnar að mýkjast.
  5. Bætið tortellini út í og sjóðið samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum, eða þar til pastað er tilbúið.
  6. Bætið rjómanum og baby leaf/spínati út í. Hitið að suðu og smakkið til með salti, pipar, nautakrafti og meira af kryddunum eftir smekk.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Rjómalöguð Tortellini súpa

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5