Linda Ben

Rjómaostabakki með fíkjusultu og pistasíum

Recipe by
5 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Innnes

Þessi rjómaostabakki með fíkjusultu og pistasíuhnetum er einstaklega einfaldur en alveg ótrúlega góður. Mjúki Philadelphia rjómaosturinn passar fullkomlega með sætri fíkjusultunni og stökkar pistasíuhneturnar setja punktinn yfir i-ið.

Þetta er einn af þessum réttum sem tekur örfáar mínútur að útbúa en lítur einstaklega vel út á veisluborðinu. Berið fram með stökkum Tuc kexi og njótið.

Rjómaostabakki með fíkjusultu og pistasíum

Rjómaostabakki með fíkjusultu og pistasíum

Rjómaostabakki með fíkjusultu og pistasíum  Rjómaostabakki með fíkjusultu og pistasíum

Rjómaostabakki með fíkjusultu og pistasíum

  • 200 g Philadelphia rjómaostur
  • Fíkjusulta
  • Pistasíuhnetur
  • Tuc kex

Aðferð:

  1. Dreifið rjómaostinum á fallegan disk og setjið sultuna yfir.
  2. Saxið pistasíuhneturnar og dreifið þeim yfir.
  3. Berið fram með Tuc kexi.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Rjómaostabakki með fíkjusultu og pistasíum

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5