Linda Ben

Rjómaostagrasker – Kryddostur með stökku og þunnu pretzel kexi

Recipe by
5 mín
Cook: Unnið í samstarfi við ÍSAM

Hversu sætt er þetta litla rjómaostagrasker! 🎃🧡

Þetta er einn af þessum réttum sem eru svo ótrúlega einfaldir í útbúningi en setja skemmtilegan svip á veisluborðið. Fullkomið fyrir hrekkjavökuna, haustboðið eða þegar mann langar að bjóða upp á eitthvað aðeins öðruvísi.

Graskerið er búið til úr mjúkum rjómaosti sem er bragðbættur með hvítlauk, paprikukryddi, oreganó og fersku dilli. Í kringum rjómaostinn er svo raðað þunnu og stökku Elephant-pretzel-snakki sem myndar þetta skemmtilega graskersútlit.

Samsetningin er einstaklega góð. Mjúkur og bragðmikill kryddostur á móti stökku og söltu pretzel-snakkinu. Það besta er að hægt er að útbúa rjómaostablönduna með góðum fyrirvara og raða snakkinu í kring rétt áður en gestirnir mæta.

Ég elska svona einfaldar hugmyndir sem líta út fyrir að vera miklu flóknari en þær eru í raun og veru! 🧡

Kryddostur með stökku og þunnu prezel kexi

Kryddostur með stökku og þunnu prezel kexi

Kryddostur með stökku og þunnu prezel kexi

Kryddostur með stökku og þunnu prezel kexi

Kryddostur með stökku og þunnu prezel kexi

Kryddostur með stökku og þunnu prezel kexi

Rjómaostagrasker – Kryddostur með stökku pretzel kexi

  • 200 g rjómaostur
  • 1 hvítlauksgeiri
  • ½ tsk paprikukrydd
  • ½ tsk oreganó
  • 1 msk smátt saxað dill
  • 70 g Elephant snakk
  • Stilkur af papriku

Aðferð:

  1. Setjið rjómaostinn í skál ásamt paprikukryddi og oreganó. Rífið hvítlauksgeirann út í, saxið dillið smátt og blandið öllu vel saman.
  2. Setjið rjómaostablönduna á plastfilmu og mótið kúlu. Vefjið plastfilmunni utan um kúluna og setjið hana í ísskáp í u.þ.b. 30 mínútur svo hún verði aðeins stífari og haldi betur lögun.
  3. Fjarlægið plastfilmuna og setjið rjómaostakúluna á fallegan disk eða lítið fat.
  4. Raðið Elephant-pretzel-snakkinu þétt í kringum rjómaostakúluna þannig að það myndi graskerslaga form.
  5. Takið stilk af papriku og setjið í miðjuna á ostinum. Þetta er gert bara upp á útlitið að gera, svo osturinn líkist meira graskeri, ekki er ætlast til að fólk borði stilkinn 😊
  6. Berið fram með meira snakki og öðru góðgæti að eigin vali.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

Kryddostur með stökku og þunnu prezel kexi

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5