Þessir saltkaramellu kringlubitar eru hættulega góðir! 😍 Stökkar Nóa súkkulaðikringlur með mjúkri rjómakaramellu á milli og örlitlu salti yfir. Fullkomin blanda af sætu, söltu, mjúku og stökku.
Karamellan er gerð úr Töggum rjómakaramellum og rjóma og verður alveg silkimjúk og dásamleg. Það besta er að bitarnir eru ótrúlega einfaldir í útbúningi og þurfa aðeins örfá hráefni. Fullkomið þegar ykkur langar að útbúa eitthvað lítið og ómótstæðilegt.



Salt karamellu kringlubitar
- 160 g Nóa súkkulaðikringlur
- 150 g Töggur rjómakaramellur frá Nóa Síríus
- 2½ msk rjómi
- Flögusalt
Aðferð:
- Bræðið Töggurnar og rjómann varlega saman í potti. Hrærið þar til silkimjúk karamella hefur myndast og leyfið henni að kólna örlítið og þykkna.
- Raðið helmingnum af súkkulaðikringlunum á smjörpappír. Setjið u.þ.b. 1 tsk af karamellu á hverja kringlu og leggið aðra súkkulaðikringlu ofan á. Þrýstið örlítið saman.
- Dreifið örlitlu flögusalti yfir og leyfið karamellunni að taka sig áður en bitarnir eru bornir fram.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar


Category:





