Linda Ben

Secret spritz

Recipe by
2 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Vínnes | Servings: 1 drykkur

Þessi kokteill sló algjörlega í gegn í sumarpartýinu mínu um daginn 😍✨

Ég bauð vinkonunum upp á þennan drykk og það leið ekki á löngu þar til allar voru farnar að spyrja hvað væri í honum. Hann er ótrúlega ferskur, léttur og sumarlegur með fallegum ávaxtakeim frá Passoa sem passar svo vel með freyðivíninu og sódavatninu.

Það sem ég elska líka við Secret Spritz er hvað hann er fallegur í glasi. Með klökum og ferskum jarðaberjum verður hann eiginlega eins og skraut á borðinu og hentar fullkomlega í stelpukvöld, saumaklúbba, grillveislur eða sumarpartý ☀️🍓🥂

Ég sýndi frá þessum drykk á um daginn þegar ég sýndi frá sumarpartýinu og hann vakti ótrúlega mikla athygli, sem kemur mér svo sem ekkert á óvart. Hann er nefnilega bæði fallegur, einstaklega góður og svo einfaldur að gera ✨🥂💕

 secret spritz, passoa spritz

secret spritz, passoa spritz

secret spritz, passoa spritz

Secret spritz

  • Klakar
  • 40 ml Passoa
  • 150 ml Pizzolato freyðivín
  • 50 ml sódavatn
  • Jarðaber sem skraut (má skipta út fyrir hindber eða eitthvað annað fallegt sem þér dettur í hug)

Aðferð:

  1. Fyllið fallegt glas til hálfs af klökum.
  2. Setjið Passoa yfir klakana og hellið svo freyðivíninu og sódavatni yfir.
  3. Skreytið með jarðaberjum eða öðru fallegu

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

secret spritz, passoa spritz

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5