Sesar salat er frábær og gómsæt leið til þess að borða alveg fullt af grænmeti.
Það sem þú þarft er:
- marinering með sítrus og lauk
- 1 pakki kjúklingalundir
- Romain salat
- Brauðteningar
- Parmesan ostur
- Sesar dressing (tilbúin eða þín eigin, uppskrift neðar)
Aðferð:
- Byrjað er á að marinera kjúklingalundi
í Stubbs kjúklingamarineringu með sítrus og lauk í að minnsta kosti klukkutíma. - Það er einfalt skref þar sem einn pakki af kjúklinga lundum er sett í hæfilega stóra skál og hálfri krukku af Stubbs marineringunni hellt yfir og aðeins hrært saman.
- Kjúklingurinn er svo steiktur á pönnu með marineringunni þangað til hann er eldaður í gegn. Stubb’s marineringin er aðal ástæðan fyrir því að salatið er svona rosalega bragðgott og því mæli ég sterklega með að þið útvegið ykkur þessa mareneringu og enga aðra!
- Takið heilann kálhaus af Roman salati og skerið hann niður, dreyfið salatinu svo á fallegan disk. Róman salat er það lang besta í Sesar salat enda er upprunalega uppskriftin með Roman salati, ég segi, ekki kaupa neitt annað því þetta er það lang besta!
- Brauðteningum er dreift yfir salatið ásamt kjúklingalundunum.
Það er mjög auðvelt að búa til sína eigin dressingu.
- 2 hvítlauksgeirar úr ferskum hvítlauk
- 2 ansjósur
- 2 msk sítrónusafi úr mayer sítrónum
- 1 tsk Dijon sinnep frá Jack Daniels
- 1 tsk Worchestersósa
- 1 bolli majónes
- 1/2 bolli rifinn parmesan ostur
- 1 tsk rauðvínsedik
- Svartur pipar eftir smekk
Aðferð:
- Allt sett í skál og blandað saman.
Parmesan ostur er rifinn niður og dreyft yfir salatið.
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Category: