Linda Ben

Silkimjúk hátíðarkartöflumús með brúnuðu salvíu smjöri 

Recipe by
30 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Vaxa | Servings: 4-5 manns

Það er ótrúlegt hvað ferskar kryddjurtir geta gert mikið fyrir einfaldan rétt! 😍

Þessi silkimjúka hátíðarkartöflumús fær alveg nýtt bragð með dásamlegri ferskri salvíu frá Vaxa sem er steikt upp úr brúnuðu smjöri þar til hún verður stökk. Salvía hefur einstakt, örlítið kryddað og ilmríkt bragð sem passar einstaklega vel við hnetukeiminn af brúnaða smjörinu og gerir kartöflumúsina að algjöru sælgæti.

Það er einmitt það sem mér finnst svo skemmtilegt við fersku kryddjurtirnar frá Vaxa, þær geta breytt einföldustu réttum í eitthvað alveg sérstakt. Þessi kartöflumús er fullkomið dæmi um það og á svo sannarlega heima á hátíðarborðinu!

Nokkur atriði sem gera kartöflumúsina extra góða

  • Notið mjölmiklar kartöflur. Þær gefa léttari og mýkri mús.
  • Ekki nota töfrasprota eða matvinnsluvél. Kartöflurnar geta orðið seigar og límkenndar.
  • Hitið mjólkina og rjómann áður en þeim er blandað saman við kartöflurnar. Það hjálpar til við að halda músinni mjúkri.
  • Bætið vökvanum smám saman við. Kartöflur taka misvel við vökva og því gæti þurft aðeins minna eða meira.

Silkimjúk hátíðarkartöflumús með brúnuðu smjöri og stökkri salvíu

Silkimjúk hátíðarkartöflumús með brúnuðu smjöri og stökkri salvíu

Silkimjúk hátíðarkartöflumús með brúnuðu smjöri og stökkri salvíu

Silkimjúk hátíðarkartöflumús með brúnuðu smjöri og stökkri salvíu

Silkimjúk hátíðarkartöflumús með brúnuðu smjöri og stökkri salvíu

Silkimjúk hátíðarkartöflumús með brúnuðu salvíu smjöri

Kartöflumús

  • 1 kg mjölmiklar kartöflur
  • 100 g smjör
  • 1 dl rjómi
  • 1 dl nýmjólk
  • 1 tsk salt, eða eftir smekk

Brúnað salvíu smjör

  • 100 g smjör
  • 15 g salvía frá Vaxa
  • Sjávarsalt

Aðferð

  1. Afhýðið kartöflurnar og skerið í jafnstóra bita, u.þ.b. 4 cm.
  2. Setjið kartöflurnar í stóran pott og hellið sjóðandi vatni yfir þar til það nær um 2 cm yfir þær. Saltið vatnið örlítið og sjóðið kartöflurnar í 15–20 mínútur eða þar til þær eru alveg mjúkar.
  3. Hellið vatninu af og leyfið kartöflunum að gufa í heitum pottinum í 1–2 mínútur. Pressið þær í gegnum kartöflupressu eða stappið mjög vel.
  4. Hitið smjör, rjóma og mjólk saman í litlum potti þar til smjörið hefur bráðnað.
  5. Hellið smjörblöndunni smám saman út í kartöflurnar og blandið varlega saman þar til músin er orðin silkimjúk. Smakkið til með salti.
  6. Setjið smjör á litla pönnu og bræðið við meðalhita. Látið smjörið freyða og brúnast þar til það fær fallegan gylltan lit og hnetukenndan ilm.
  7. Bætið salvíublöðunum út í undir lokin og steikið í 20–40 sekúndur þar til þau verða stökk. Takið strax af hitanum.
  8. Setjið kartöflumúsina í fallega skál og myndið mjúkar bylgjur í yfirborðið með skeið. Hellið brúnuðu smjörinu yfir og skreytið með stökkri salvíu, ferskri salvíu og örlitlu sjávarsalti.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

Silkimjúk hátíðarkartöflumús með brúnuðu smjöri og stökkri salvíu

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5