Linda Ben

Silkimjúk sítrónuostakaka með sítrónukremkexbotni

Recipe by
8 klst
Cook: Unnið í samstarfi við Frón | Servings: 8-10 manns

Silkimjúk sítrónuostakaka með sítrónukremkexbotni

Ef þið elskið sítrónu eftirrétti, þá eigið þið eftir að falla fyrir þessari köku! 🍋

Þessi silkimjúka sítrónuostakaka er einstaklega létt, fersk og full af dásamlegu sítrónubragði. Botninn er gerður úr Frón kremkexi með sítrónukremi sem passar fullkomlega með mjúku og loftkenndu fyllingunni. Útkoman er falleg og fersk ostakaka sem bráðnar nánast í munni.

Þetta er fullkominn eftirréttur þegar mig langar að bjóða upp á eitthvað sem lítur glæsilega út en er ótrúlega einfalt að útbúa. Hún hentar jafnt í afmæli, veislur og sumarboð eða einfaldlega þegar ykkur langar að dekra aðeins við ykkur. Það besta er að þú getur gert hana tilbúna mörgum dögum áður en hún er borin fram þar sem hún geymist einstaklega vel í frysti.

silkimjúk sítrónuostakaka

silkimjúk sítrónuostakaka

silkimjúk sítrónuostakaka

silkimjúk sítrónuostakaka

silkimjúk sítrónuostakaka

silkimjúk sítrónuostakaka

Silkimjúk sítrónuostakaka með sítrónukremkexbotni

  • 260 g Frón kremkex með sítrónukremi
  • 80 g brætt smjör
  • 400 g rjómaostur
  • 200 g flórsykur
  • 750 ml rjómi – skipt í 500 og 250 ml
  • 2 sítrónur

Aðferð:

  1. Bræðið smjörið og setjið það í matvinnsluvél með kremkexinu. Blandið kexið þar til það er orðið að mjúku mauki. Pressið það ofan í 24 cm stórt smurt smelluform. Mér finnst líka gott að nota bara hringinn af smelluforminu, smyrja það fyrst og klæða svo með smjörpappír, setja hringinn svo á kökudisk og sleppa botninum. Pressið kexmaukið beint á kökudiskinn með smelluforms hringnum.
  2. Hrærið saman rjómaost og flórsykur. Rífið börkinn af 1 sítrónu og kreystið úr henni safann ofan í rjómaostablönduna, blandið saman við. Þeytið 500 ml rjóma þar til hann er orðinn stífur og blandið honum varlega saman við.
  3. Hellið rjómaostablöndunni ofan á kexkökubotninn, sléttið úr og setjið kökuna í frysti í a.m.k. 8 klst eða lengur. Gott er að setja plastfilmu yfir áður en hún er sett í frystinn.
  4. Takið kökuna úr frystinum og losið úr forminu, gott er að gera þetta u.þ.b. 2 tímum áður en hún er borðuð.
  5. Þeytið 250 ml rjóma og setjið hann ofan á kökuna. Skerið hina sítrónuna í sneiðar og skerið aðeins inn í hverja sneið, snúið upp á hana og leggið sneiðina standandi á kökuna.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

silkimjúk sítrónuostakaka

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5