Þetta silkimjúka perurisotto með hvítvíni, gráðosti og ristuðum valhnetum er algjört sælgæti og einstaklega skemmtileg tilbreyting frá hefðbundnu risotto! 😍
Samspil sætu peranna, bragðmikils gráðostsins og ristuðu valhnetanna er alveg dásamlegt. Perurnar gefa risottoinu milda sætu sem passar einstaklega vel við gráðostinn, á meðan valhneturnar bæta við góðu krönsi. Hvítvínið gefur svo réttinum ferskleika og skemmtilega dýpt í bragðið.
Ég notaði Muga Rioja hvítvín í uppskriftina sem kemur einstaklega vel út með þessum hráefnum. Vínið er notað við eldunina og gefur risottoinu ljúffengt bragð, en mér finnst líka tilvalið að bera fram glas af sama víni með réttinum.
Þetta er fullkominn réttur fyrir notalegt kvöld heima eða þegar maður vill bjóða upp á eitthvað aðeins meira spennandi. Risottoið er dásamlega kremkennt, bragðmikið og fallegt á diski, sérstaklega með gylltu smjörsteiktu perunum, fersku timjani og ristuðu valhnetunum ofan á.


Silkimjúkt perurisotto með hvítvíni, gr og ristuðum valhnetum
Risotto
- 350 g risottohrísgrjón
- 2 perur, helst frekar stífar
- 1 aukur
- 2-3 hvítlauksrif
- 150 ml hvítvín, ég notaði Muga Rioja
- 1–1,5 l vatn
- 2 – 4 tsk grænmetiskraftur (fer eftir tegund svo betra að smakka til)
- 2 msk ólífuolía
- 40 g smjör
- 100 g gráðostur
- 50 g parmesanostur
- 1 msk ferskt timjan
- Salt og pipar
Smjörsteiktar perur og skraut
- 1 pera
- 20 g smjör
- 50 g valhnetur
- Ferskt timjan
- Parmesanostur
- Svartur pipar
Aðferð
- Saxið lauk og hvítlauk smátt. Afhýðið tvær perur, fjarlægið kjarnann og skerið í litla teninga.
- Hitið ólífuolíu og 20 g af smjöri á stórri, djúpri pönnu við meðalhita. Steikið laukinn þar til hann er orðinn mjúkur og glær. Bætið hvítlauknum út á pönnuna og steikið í um 1 mínútu.
- Setjið risottohrísgrjónin út á pönnuna og hrærið í 1–2 mínútur þar til þau eru orðin glansandi.
- Hellið hvítvíninu yfir hrísgrjónin og látið sjóða niður þar til mestur vökvinn hefur gufað upp.
- Bætið peruteningunum og fersku timjan saman við. Hellið svolítið af vatni út á pönnuna og hrærið reglulega. Bætið meira af vatni við þegar hrísgrjónin hafa tekið upp mestan vökvann. Bætið grænmetiskrafti saman við. Haldið áfram í um 18–22 mínútur eða þar til hrísgrjónin eru orðin mjúk en hafa enn örlítið bit.
- Á meðan risottoið eldast eru valhneturnar ristaðar á þurri pönnu þar til þær hafa tekið örlítinn lit og ilma vel. Takið þær af pönnunni og saxið gróft.
- Skerið þriðju peruna í fallegar, þunnar sneiðar. Bræðið 20 g af smjöri á pönnu og steikið perusneiðarnar við meðalhita í um 3-4 mínútur á hvorri hlið eða þar til þær hafa tekið fallegan gylltan lit. Leggið þær á eldhúspappír og þerrið svo þær stífni svolítið.
- Þegar risottoið er tilbúið er pannan tekin af hitanum. Bætið 20 g af smjöri, gráðosti og nýrifnum parmesanosti saman við. Hrærið varlega þar til osturinn hefur bráðnað og risottoið er orðið silkimjúkt og kremkennt.
- Smakkið til með salti og pipar.
- Skiptið risottoinu á fallega diska og toppið með smjörsteiktum perusneiðum, ristuðum valhnetum, fersku timjan, nýrifnum parmesanosti og nýmöluðum svörtum pipar.
- Berið fram strax, gjarnan með glasi af sama hvítvíni og notað var í uppskriftina.







