Linda Ben

Sítrónu blondie með hvítu súkkulaði og jarðaberjum

Ef þú elskar sítrónubakstur en brownie áferð á kökum þá þarftu að prófa þessa blondie köku 😍✨

Hún er mjúk, djúsí og þétt í sér eins og góð blondie á að vera, með fersku sítrónubragði sem kemur svo vel út með sætunni úr hvíta súkkulaðinu og safaríkum jarðaberjum.

Sítrónubörkurinn gefur kökunni ferskan og sumarlegan keim á meðan hvítu súkkulaðidroparnir bráðna að hluta til inni í kökunni og mynda litla sæta bita í hverjum munnbita. Jarðaberin gera hana svo extra safaríka, bragðgóða og fallega á litinn.

Til að toppa allt saman er svo einfaldur sítrónuglassúr sem gefur kökunni þetta fullkomna sæta og sítrónukennda jafnvægi. Útkoman er kaka sem er bæði fersk, mjúk og algjörlega ómótstæðileg ✨

Mér finnst þetta vera ein af þessum kökum sem passar jafn vel með kaffibollanum og á veisluborðið. Hún er falleg, einföld og bragðast eins og sumar í hverjum bita ☀️🍓🍋

  • 200 g brætt smjör
  • 250 g ljós púðursykur
  • 2 egg
  • 1 tsk vanilludropar
  • 200 g hveiti
  • 1/2 tsk salt
  • Börkur af 1 sítrónu
  • 150 g jarðaber
  • 300 g Síríus hvítir súkkulaðidropar

Sítrónu glassúr

  • 200 g flórsykur
  • Safi úr sítrónu

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfir hita.
  2. Bræðið smjörið og setjið í skál ásamt púðursykri. Bætið eggjunum og vanilludropum út í og blandið öllu saman.
  3. Bætið hveitinu, salti og sítrónuberki út í, blandið saman.
  4. Skerið jarðaberin smátt niður og bætið út í deigið ásamt hvítu súkkulaðidropunum.
  5. Smyrjið 25 cm form (eða sambærilega stórt form) og setjið deigið í formið.
  6. Bakið í 25 mín eða þar toppurinn er byrjaður að gyllast og kakan er orðin þétt í sér. Kælið kökuna í a.m.k. 2 klst áður en hún er skorin.
  7. Útbúið glassúrinn með því að setja flórsykur í skál og smá sítrónusafa, hrærið saman og bætið við meiri sítrónusafa eftir þörf þar til blandan er orðin þykk fljótandi. Hellið yfir kökuna og skerið í bita.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5