Linda Ben

Sítrónu og rósmarín focaccia

Recipe by
2 klst
Cook: Unnið í samstarfi við Sigma ekta grískt

Sítrónu og rósmarín focaccia sem þú átt alveg örugglega eftir að elska!

Focaccia hefur lengi vel alltaf verið eitt af uppáhalds brauðunum mínum. Það er svo safartíkt og bragðmikið, dásamlegt eitt og sér með góðri hágæða ólífu olíu eða ólífumauki. Það er heldur ekki síðra til að útbúa samlokur með gómsætu áleggi.

Lykillinn að góðu focaccia brauði er góð extra virgin ólífu olía og mæli ég svo sannarlega með ólífu olíunni frá Sigma, hún er svo dásamlega góð, áferðin mjúk og ljúft eftirbragð. Þú getur skoðað vörurnar hér.

Sítrónu og rósmarín focaccia

Sítrónu og rósmarín focaccia

Sítrónu og rósmarín focaccia

Sítrónu og rósmarín focaccia

Sítrónu og rósmarín focaccia

Sítrónu og rósmarín focaccia

  • 400 ml volgt vatn
  • 12 g þurrger
  • 1 tsk sykur
  • 600 g hveiti
  • 1 tsk salt
  • 2 dl extra virgin olífu olía (skipt í tvennt)
  • 1 sítróna
  • Ferskt rósmarín (3-4 greinar)
  • Spitiko sjávarsalt “santorini volcano” mix
  • Spitiko svart ólífumauk

Aðferð:

  1. Blandið þurrgerinu út i volga vatnið ásamt sykri, leyfið að standa í 2-3 mín.
  2. Setjið hveiti og salt í skál, hellið gervatninu út í hveitið ásamt 1 dl ólífu olíu og hnoðið saman í nokkrar mín. Leyfið deiginu að hefast í klukkutíma.
  3. Smyrjið 20×30 cm form og setjið deigið í formið, sléttið úr því að mestu og leyfið því að hefast í 30 mín í forminu. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfir hita.
  4. Gerið holur í deigið með fingrunum og hellið svo ólífu olíunni yfir, skerið sítrónuna í sneiðar og raðið yfir. Rífið rósmarínið niður og dreifið því yfir. Dreifið Santorini volcano sjávarsaltinu yfir. Bakið inn í ofni í u.þ.b. 30-35 mín eða þar til holt hljóð heyrist í brauðinu sé bankað í það.
  5. Berið fram með Spitiko ólífumauki og ólífu olíu.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

Sítrónu og rósmarín focaccia

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5