Sítrónupasta með rjómaostasósu
Ef þig langar í pastarétt sem er bæði ferskur, kremkenndur og fullur af bragði þá er þetta sítrónupasta með rjómaostasósu algjör snilld.
Risarækjurnar eru steiktar þar til þær verða safaríkar og fá fallega áferð, en sósan er það sem gerir þennan rétt extra góðan. Rjómaostur og pastavatn blandast saman í silkimjúka sósu sem umlykur pastað fullkomlega, á meðan sítrónubörkur og sítrónusafi gefa ferskan og léttan keim sem lyftir öllu upp.
Ferskt babyleaf og basilíka frá VAXA bæta svo við bæði lit, ferskleika og næringu, sem gerir réttinn bæði fallegan á disknum og léttari í heildina.
Þetta er réttur sem er fljótlegur, einfaldur og fullkominn bæði í hversdags og þegar þú vilt gera eitthvað aðeins meira fágað án mikillar fyrirhafnar ✨





Sítrónupasta með rjómaostasósu
- 400 g rigatoni pasta (eða önnur pastategund)
- 800 g risarækjur
- 4-5 hvítlauksgeirar
- 200 g rjómaostur
- 250 ml pastavatn (vatnið sem pastað er soðið í)
- 1 sítróna
- 50 g Babyleaf frá Vaxa
- Salt og pipar
- 15 g Basilíka frá Vaxa
Aðferð:
- Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum, takið frá 250 ml af pastavatninu áður en þið hellið vatninu aff pastanu þegar það er soðið. Pastavatnið verður notað í sósuna.
- Steikið rækjurnar upp úr olíu, kryddið þær með salti og pipar.
- Takið rækjurnar af pönnunni þegar þær eru fulleldaðar og geymið á disk. Ekki þrífa pönnuna.
- Rífið hvítlauksgeirana niður og steikið á pönnunni með smá 0líu. Bætið rjómaostinum og svolítið af pastavatninu út á pönnuna. Hrærið öllu saman, rífið börkinn af sítrónunni út á pönnuna og kreytstið sítrónusafann úr 1/2 sítrónunni.
- Bætið babyleaf salatinu út á pönnuna og setjið restina af pastavatninu út í, hrærið allt saman og látið malla þar til sósan er byrjuð að þykkna. Smakkið til með salti og pipar.
- Bætið pastanu og risarækjunum út í og blandið öllu saman.
- Berið fram með ferskri basilíku.









