Þessar bláberja möffins sem eru hollari en margar aðrar en gefa ekkert eftir þegar kemur að bragði. Ekkert smjör er notað í þessa uppskrift, bara góð grænmetisolía og grískt jógúrt. Mjög lítill sykur er notaður en bláberjabragðið skín vel í gegn sem gerir þær guðdómlega góðar.
Byrjað er að baka kökurnar í mjög heitum ofni til þess að myndist krispí toppur á kökurnar en hitinn er svo lækkaður. Innan í eru kökurnar svo silki mjúkar og léttar.
Heilsusamlegar bláberja muffins, uppskrift:
- 1 egg
- ¼ – ½ bolli sykur (fer eftir smekk)
- ½ bolli möndlumjólk
- ¼ bolli grænmetisolía
- ¼ bolli grískt jógúrt
- 1 ½ bolli hveiti
- 2 tsk matarsódi
- 1 tsk vanillu dropar
- 1 ½ bolli bláber, frosin eða fersk
Aðferð:
- Stillið ofninn á 220°C
- Byrjið á því að hræra saman sykur og egg.
- Bæti mjólk, grænmetisolíu og grískri jógúrt útí og blandið saman.
- Setjið hveiti og matarsóda útí og blandið saman.
- Bæti vanilludropum og bláberjunum útí og hrærið varlega saman við.
- Setjið stór muffins form eða smjörpappír í álbakka fyrir stórar muffins. Ef þið eigið ekki stóran muffins álbakka þá getið þið líka notað lítinn en þurfið þá að stytta bökunartímann. Fyllið formin upp um ¾ formsins.
- Bakið við 220°C í 5 mín.
- Lækkið á ofninum í 175°C og bakið áfram í 20 mín eða þangað til kökurnar eru bakaðar í gegn.
Njótið vel!
Ykkar, Linda Benediktsdóttir
Category: