Smáköku blondie með kexkökumiðju
Slutty blondie
Smákökubotn
- 100 g smjör
- 200 g sykur
- 1 egg
- 1 tsk vanilludropar
- 175 g hveiti
- ¼ tsk salt
- ½ tsk lyftiduft
- ½ tsk matarsódi
- 100 g hvítt súkkulaði
Kexlag
- 260 g Frón Kremkex með vanillubragði
Blondie
- 100 g smjör
- 100 hvítt súkkulaði
- 1 egg
- 200 g púðursykur
- 1 tsk vanilludropar
- 150 g hveiti
- ½ tsk lyftiduft
- ¼ tsk salt
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir blástur.
- Byrjið á því að útbúa smákökubotninn.
- Þeytið saman smjör og sykur þar til létt og ljóst. Bætið egginu út í ásamt vanillidropum og hrærið saman við.
- Blandið saman hveiti, salti, lyftidufti og matarsóda. Bætið því svo út í deigið og hrærið létt saman þar til samlagað.
- Blandið hvíta súkkulaðinu saman við og geymið deigið á meðan blondie deigið er útbúið.
- Bræðið saman smjör og hvítt súkkulaði í potti með því að bræða smjörið fyrst varlega og slökkva svo undir pottinum, setja þá hvíta súkkulaðið ofan í og leyfa smjörinu að bræða það.
- Þeytið eggið þar til létt og ljóst, bætið svo út í púðursykrinum og þeytið saman.
- Bætið vanillurdropunum út í og þeytið.
- Hellið súkkulaðiblöndunni út í í mjórri bunu og hrærið saman við á sama tíma.
- Blandið saman hveiti, lyftidufti og salti, hellið út í deigið og hrærið saman með sleikju.
- Smyrjið 25×25 cm form (eða álíka stórt) og þrýstið smákökudeiginu í botninn.
- Raðið kremkexinu yfir smákökudeigið.
- Hellið blondie deiginu yfir og dreifið úr því.
- Bakið inn í ofni í 30-35 mín. Takið út úr ofninum og leyfið kökunni að ná stofuhita áður en þið skerið í hana.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar
Category: