Smjörsalat með ólífum og feta
Þetta salat er einfalt en ótrúlega bragðgott og smjördressingin gerir það svolítið extra. Stökkt og ferskt salat er toppað með grænum ólífum, fetaosti og fersku dilli og yfir fer volg dressing úr bræddu smjöri, balsamediki og hlynsírópi. Útkoman er dásamleg blanda af söltu, sætu og örlítið súru bragði.
Ég nota salat og ferskt dill frá Vaxa í uppskriftina. Mér finnst vörurnar þeirra einstaklega fallegar í svona rétt þar sem ferska grænmetið og kryddjurtirnar fá virkilega að njóta sín. Salatið er einfalt í útbúningi en verður svo fallegt á borði og passar með ótrúlega mörgum réttum.
Mér finnst salatið sérstaklega passa vel með grilluðu eða ofnbökuðu lambakjöti, góðri nautasteik, kjúklingi eða laxi. Það væri líka geggjað með kartöflum og grilluðu kjöti á veisluborði.


Smjörsalat með ólífum og feta
Salat
- 1 salathaus frá Vaxa
- 300 g grænar ólífur
- 100 g fetaost kubbur án olíu
- 7 g dill frá Vaxa
Smjördressing
- 100 g brætt smjör
- 2 msk balsamikedik
- 1 msk hlynsíróp eða hunang
- Salt
Aðferð:
- Losið salatblöðin varlega af salathausnum og raðið þeim fallega á stórt fat.
- Skerið ólífurnar í sneiðar og rífið fetaostinn gróflega yfir salatið.
- Grófsaxið dillið og dreifið yfir.
- Setjið brætt smjör, balsamedik, hlynsíróp eða hunang og örlítið salt í krukku. Lokið krukkunni og hristið vel þar til dressingin hefur blandast saman.
- Hellið volgri smjördressingunni yfir salatið rétt áður en það er borið fram.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar






