Linda Ben

Sólskins spritz

Recipe by
Cook: Unnið í samtarfi við Innnes

Sólskins spritz

Ef þið eruð að leita að ljúffengum kokteil sem er bæði fallegur og ótrúlega góður, þá verðið þið að prófa þennan! 🌸🥂

Sólskins Spritz sameinar ferskt hindberjamauk, Passoa, Cointreau og freyðandi prosecco í einstaklega ferskan og ávaxtaríkan kokteil. Hann er fallega bleikur á litinn, léttur og fullkominn fyrir grillveislur, stelpukvöld eða notaleg kvöld með fólkinu þínu.

Ég notaði Lamberti Prosecco, sem gefur drykknum fallega freyðingu og passar einstaklega vel með ávaxtabragðinu. Skreytið með ferskum hindberjum og myntu og þið eruð komin með kokteil sem lítur út eins og hann sé beint af kokteilseðli á góðum veitingastað. ☀️🍓

Sólskins spritz
Sólskins spritz

Sólskins spritz

Sólskins spritz

  • Klakar
  • 30 ml Cointreau
  • 30 ml Passoa
  • 30 ml hindberjamauk (frosin hindber sett í blandara)
  • 60 ml prosecco – ég nota Lamberti
  • Sódavatn
  • Fersk Driscoll’s hindber sem skraut
  • Fersk mynta sem skraut

Aðferð:

  1. Setjið frosin hindber í blandara og maukið þau.
  2. Setjið klaka í glas ásamt Cointreau, Passoa og hindberjamauki.
  3. Hellið prosecoo yfir og fyllið upp með sódavatni.
  4. Skreytið með ferskum hindberjum og myntu.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Sólskins spritz

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5