Sörur – klassísku jóla smákökurnar
Þessa uppskrift er að finna í uppskriftabókinni minni Kökur.
Til þess að gefa ykkur örlitla innsýn inn í bókina vil ég deila með ykkur þessum æðislegu smákökum sem við íslendingarnir erum mörg hver alin upp við og eru órjúfanlegur hluti af jólahefð okkar margra.
Bókin er til sölu í flest öllum verslunum núna fyrir jólin, til dæmis: Hagkaup, Bónus, Pennanum Eymundsson til þess að nefna örfá dæmi. Einnig er hægt að kaupa hana á netinu hér: https://www.fullttungl.is/kokur

Sörur
Flestir Íslendingar tengja sörur við jólin en að mínu mati má bera þær fram allan ársins hring. Í stað þess að útbúa botna úr möndlum og marengs baka ég marsípanbotna sem mér þykja hvoru tveggja bragðbetri og auðveldari í framkvæmd.
- 
Um 30 kökur
 - 
Tími: 15 mín. (framkvæmd) + 45 mín. (kæling og framkvæmd) + 10-12 mín. (bakstur) + 30 mín. (kæling) + 15 mín. (hjúpun) = um 2 klst.
 - 
Geymast vel í frysti
 
Krem
- 
4 eggjarauður
 - 
100 g sykur
 - 
100 g vatn
 - 
200 g súkkulaði
 - 
100 g smjör, mjúkt
 
Botnar
- 
200 g marsípan
 - 
80 g flórsykur
 - 
1 eggjahvíta
 
Hjúpur
- 
150 g suðusúkkulaði
 
Aðferð
- 
Byrjið á því að útbúa kremið.
 - 
Þeytið eggjarauður í hrærivél þar til blandan er orðin létt og ljós. Hitið vatn og sykur í potti í um 3 mín. eða þar til sykurinn hefur náð að leysast upp í vatninu. Hellið sykurvatninu saman við eggjarauðurnar í mjórri bunu og hrærið rólega á meðan. Þeytið þar til blandan er loftmikil og nánast hvít að lit.
 - 
Bræðið súkkulaðið. Hellið því næst súkkulaðibráðinni saman við eggjablönduna í mjórri bunu og hrærið rólega á meðan. Stoppið reglulega og skafið hliðar skálarinnar með sleikju svo allt blandist vel saman. Skerið mjúka smjörið í litla bita og þeytið það saman við.
 - 
Geymið kremið inni í ísskáp í um 45 mín. eða á meðan verið er að útbúa botnana.
 - 
Kveikið á ofninum og stillið á 175°C með yfir- og undirhita.
 - 
Rífið marsípan í skál og hrærið eggjahvítunni saman við. Bætið flórsykrinum út í og hrærið öllu saman.
 - 
Setjið deigið í sprautupoka og sprautið um 2-3 cm breiðum kökum á smjörpappír á ofnplötu. Notið bakhlið á skeið til að slétta vel úr hverri köku svo þær verði um 3-4 cm breiðar og ½ cm þykkar.
 - 
Bakið í 10-12 mín. eða þar til kantarnir á kökunum hafa tekið á sig gullinn lit. Leyfið botnunum að kólna á kæligrind og snúið þeim síðan við svo flata hliðin snúi upp.
 - 
Smyrjið kremi á hverja köku svo það sé kúpt í miðjunni en þynnist út að köntunum. Kælið kökurnar í smá stund.
 - 
Bræðið loks súkkulaði yfir vatnsbaði og hjúpið hverja köku með því að dýfa kreminu ofan í súkkulaðið. Leggið kökurnar á kæligrind á meðan súkkulaðið storknar.
 
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar


Category: 


