- 50 g gulrætur
- 150 g hvítkál
- 150 g rauðkál
- 50 ml eplaedik
- 1 stk lime
- ¼ tsk salt
- ½ msk sykur
- 200 g þorskur
- 2 msk hvítlauksolía
- 1 msk Sriracha sósa
- 400 g hveiti
- 10 g matarsódi
- 1 tsk salt
- 500 ml bjór
- Djúpsteikingarolía
- Tortilla kökur 6”
- 1 dl majónes
- 1 msk Sriracha sósa
- Ferskt kóríander
Aðferð:
- Skerið gulrætur, hvítkál og rauðkál í strimla og steikið á pönnu upp úr olíu, setjið edik, lime, sykur og salt á pönnuna og steikið þar til grænmetið er farið að verða nokkuð mjúkt.
- Skerið þorskinn í 5 cm bita. Setjið sriracha sósu og hvæitlauksolíu yfir og hjúpið þorskinn.
- Setjið olíu í pott, hún þarf að ná u.þ.b. 5 -7 cm. Hitið olíuna að 180°C.
- Blandið saman hveiti, matarsóda, salti og bjór. Setjið fiskinn ofan í deigið og hjúpið hann.
- Setjið fiskinn ofan í olíuna, einn bita í einu helst og steikið í u.þ.b. 5 mín eða þar til bitinn er orðinn gullin brúnn. Leyfið olíunni að ná aftur upp í 180°C ef hún hefur kólnað og steikið næsta bita. Takið upp úr olíunni og setjið á eldhúspappír.
- Setjið majónes í skál ásamt sriracha sósu og örlítið af salti, blandið saman.
- Raðið grænmetinu á vefjurnar fyrst, svo fiskinn, setjið sósuna yfir og svo ferskt kóríander.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar