Linda Ben

Stökkir hunangsgljáðir kjúklingabitar

Recipe by
35 mín
Cook: Unnið í samstafi við Ísam | Servings: 4 manns

Þessir stökku hunangsgljáðu kjúklingabitar eru algjört sælgæti! Kjúklingalærin eru hjúpuð með muldu Finn Crisp hrökkbrauði og kryddum og síðan bökuð í ofni þar til hjúpurinn er orðinn dásamlega stökkur og gylltur.

Í lokin fer svo heitur hunangssmjörsgljái yfir kjúklinginn sem gerir réttinn alveg ómótstæðilegan. Chilíflögurnar gefa gljáanum smá hita á móti sætunni en þeim má auðvitað sleppa. Útkoman er stökk að utan, safarík að innan og með þessari geggjuðu blöndu af sætu, söltu og örlítið spicy bragði. 😍Stökkir hunangsgljáðir kjúklingabitar

Stökkir hunangsgljáðir kjúklingabitar

Stökkir hunangsgljáðir kjúklingabitar

Stökkir hunangsgljáðir kjúklingabitar

Stökkir hunangsgljáðir kjúklingabitar

Stökkir hunangsgljáðir kjúklingabitar

Stökkir hunangsgljáðir kjúklingabitar

Stökkir hunangsgljáðir kjúklingabitar

  • 700 g kjúklingalæri
  • 1 egg
  • 1 tsk – 1 msk hot sauce (magn eftir smekk)
  • 100 g Finn Crisp hrökkbrauð
  • 1 tsk hvítlaukskrydd
  • 1 tsk oreganó
  • 1 tsk paaprikukrydd
  • 1 tsk salt

Hunangsgljái

  • 100 g smjör
  • 100 g hunang (ég notaði frekar þykkt hunang)
  • ¼ – ½ tsk chilí kryddflögur (má sleppa)

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir- og yfirhita.
  2. Setjið eggið í skál ásamt hot sauce og hrærið saman.
  3. Myljið Finn Crisp hrökkbrauðið fínt í blandara. Setjið í skál ásamt hvítlaukskryddi, oreganó, paprikukryddi og salti og blandið saman.
  4. Veltið kjúklingalærunum fyrst upp úr eggjablöndunni og síðan upp úr Finn Crisp blöndunni þannig að þau séu vel hjúpuð.
  5. Raðið kjúklingnum á smjörpappírsklædda ofnplötu og bakið í u.þ.b. 25–30 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn og hjúpurinn orðinn stökkur og gylltur.
  6. Setjið smjör og hunang í pott ásamt chilíflögum, ef þið viljið. Bræðið saman við vægan hita og hrærið þar til gljáinn er samfelldur. Dreifið heitum hunangsgljáanum yfir kjúklinginn rétt áður en hann er borinn fram.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5