Þessi dásamlega góða hrísgrjónaskál með stökkum Oumph! bitum í bragðmikilli asískri BBQ-sósu og fersku grænmeti er algjört sælgæti!
Oumph! Popcorn Chicken bitarnir eru stökkir að utan og mjúkir að innan og verða einstaklega góðir þegar þeim er velt upp úr sósunni sem er með ljúffengu bragði af BBQ, sojasósu, hvítlauk, engifer og sesamolíu.
Ég ber bitana fram með hrísgrjónum, fersku rauðkáli, gulrótum og blaðlauk sem gefur réttinum dásamlegan ferskleika og gott jafnvægi á móti bragðmikilli sósunni. En þú getur notað hvaða grænmeti sem er en hún kemur sérstaklega vel út líka með avocadó, agúrku og vorlauk.
Þetta er einfaldur og fljótlegur réttur sem hentar fullkomlega í kvöldmatinn þegar mann langar í eitthvað extra gott án þess að eyða miklum tíma í eldhúsinu. 🥢
Stökkir Oumph! bitar í asískri BBQ-sósu með hrísgrjónum og fersku grænmeti
- 400–500 g Oumph! Popcorn Chicken
Korean sticky sósa
- 1 dl bbq sósa
- 3 msk sojasósa
- 1 ½ msk hrísgrjónaedik
- 2 msk sesamolía
- 2 hvítlauksrif
- 2 cm ferskt rifið engifer
Tillaga að meðlæti
- 250 g hrísgrjón
- ½ agúrka
- 1 avókadó
- 2 vorlaukar
- rauðkál
- Ferskt kóríander
- Límónubátar
- Sesamfræ
Aðferð
- Eldið Oumph! Popcorn Chicken samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum þar til bitarnir eru orðnir vel heitir og stökkir. Ég myndi helst nota airfryer eða ofn til að fá sem besta áferð.
- Sjóðið hrísgrjónin samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum.
- Útbúið sósuna á meðan. Setjið BBQ sósu, sojasósu, hrísgrjónaedik, sesamolíu, pressuð hvítlauksrif og rifið engifer í skál og hrærið saman.
- Skerið grænmetið niður.
- Þegar Oumph! bitarnir eru tilbúnir eru þeir settir í skál með sósunni og öllu velt saman þar til bitarnir eru hjúpaðir í sósunni.
- Skiptið hrísgrjónunum í skálar og raðið Oumph! bitunum yfir ásamt grænmeti.
- Toppið með fersku kóríander og límónubátum.
- Berið fram strax á meðan bitarnir eru enn stökkir.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar








